Lífið

Mundi fékk fötin sín aftur

Í leikstjórahlutverki Fatahönnuðurinn Mundi frumsýnir sína fyrstu stuttmynd í kvöld og er spenntur að sjá viðbrögðin hjá samlöndum sínum en myndin fékk góðar viðtökur á tískuvikunni í París.
Fréttablaðið/arnþór
Í leikstjórahlutverki Fatahönnuðurinn Mundi frumsýnir sína fyrstu stuttmynd í kvöld og er spenntur að sjá viðbrögðin hjá samlöndum sínum en myndin fékk góðar viðtökur á tískuvikunni í París. Fréttablaðið/arnþór
„Við duttum í lukkupottinn og endur­heimtum allan lagerinn okkar gegn fundarlaunum,“ segir Mundi fatahönnuður en Fréttablaðið sagði frá því um daginn að brotist hefði verið inn í nýopnaða búð hans á Laugaveginum og lager­inn nánast tæmdur. „Við fengum allt til baka og þurfum því ekki spá í þessu meir sem er mikill léttir,“ segir Mundi.

Hann er þessa dagana að undir­búa frumsýningu hér á landi á sinni fyrstu stuttmynd sem nefnist Rabbit Hole. Myndin var sýnd í fyrsta skiptið á tískuvikunni í París þar sem henni var vel tekið. „Viðtökurnar voru frábærar og áhorfendur voru ánægðir,“ segir Mundi en hann er bæði handritshöfundur og leikstjóri myndarinnar en aðstandendur netmiðilsins Daze Digital hrifust af henni og verður hún sýnd þar á næstu dögum.

En hvað er tískustuttmynd? „Þetta er kannski ekki beint tískustuttmynd heldur meira svona súrrealískt ævintýri. Allir leikarar klæðast fötum frá mér og auðvitað sýnir hún fatnaðinn vel,“ segir Mundi en myndin hefur lúmska tengingu við ævintýrið um Lísu í Undralandi og fjallar um unga og sæta norn, sem leikin er af fyrirsætunni Brynju Jónbjarnadóttur. Hún lendir í ýmsum ævintýrum í myndinni rétt eins og Lísa.

Myndin verður sýnd í kvöld í Bíó Paradís klukkan 20 og býður Mundi alla velkomna að sjá hana. „Ég hlakka mikið til að sýna myndina hér heima og get vel trúað mér til að setjast í leikstjórastólinn aftur. Þetta var mjög gaman.“ - áp





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.