Sonur Nönnu í fótspor Ramseys 24. júní 2010 10:00 Hjalti Nönnuson er liðtækur í eldhúsinu og hefur nú þýtt kokkabók Gordons Ramsay.Fréttablaðið/Arnþór
Hjalti Nönnuson hefur lokið við að þýða sína fyrstu bók; uppskriftabók stjörnukokksins og Íslandsvinarins Gordons Ramsey sem á að koma út í október. Hjalti á ekki langt að sækja mataráhugann en hann er sonur Nönnu Rögnvaldardóttur matargúrús. Mataráhuginn kviknaði samt ekki fyrr en hann flutti að heiman. „Mamma benti á mig í þetta verkefni því hún veit að ég hef mikinn áhuga á mat og eldamennsku og taldi mig vera fullfæran í að þýða þessa bók," segir Hjalti en hann er ekki menntaður kokkur. Á meðan hann þýddi bókina eldaði Hjalti þær uppskriftir í bókinni sem honum leist á. „Gordon virðist vera mjög hrifinn af smokkfiski og trúðu því eður ei, en ég er mjög matvandur og sneiddi því hjá þeim uppskriftum í bókinni sem meðal annars innihéldu smokkfisk," segir Hjalti hlæjandi og bætir við að fólk verði oft mjög hissa þegar það uppgötvar að hann sé matvandur komandi af svona miklu matarheimili. „Systir mín er yfirlýst grænmetisæta og ég mundi til dæmis frekar borða hrá dekk en sveppi svo við mamma erum löngu búin að komast að samkomulagi í þessum málum. Hún eldar það sem henni sýnist og verðum við bara að sneiða fram hjá því sem okkur líkar ekki." Í bókinni Eldað um veröld víða tekur Gordon Ramsey saman uppskriftir frá sínum tíu uppáhaldsstöðum í heiminum og lögð er áhersla á hversdagsmat. Maður ætti því ekki að þurfa að vera neinn stjörnukokkur til geta eldað upp úr bókinni. „Ramsey vill meina að núna sé matur orðinn svo aðgengilegur, maður á að geta eldað mat frá öllum heimsálfunum sama hvar maður er staddur," segir Hjalti. - áp
Mest lesið Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Tónlist Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok Bíó og sjónvarp Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni „La La Höndin“ úr sögunni Lífið Ali G snýr aftur Bíó og sjónvarp Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Lífið Fleiri fréttir Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Sjá meira