Innlent

Þyrla sótti slasaðan ökumann til Borgarfjarðar

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan ökumann í Borgarfirði.
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan ökumann í Borgarfirði.

Ökumaður bifreiðar, sem valt í Borgarfirði, var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann í Fossvoginum í morgun.

Einn farþegi var í bílnum en hann slasaðist minna en ökumaðurinn.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi fékk ökumaðurinn höfuðáverka þegar fólksbifreið sem hann ók valt nokkrum kílómetrum fyrir neðan Húsafell.

Slysið átti sér stað rétt fyrir klukkan níu í morgun. Ráðlegast þótti að kalla til þyrlu Landhelgisgæslunnar sem flutti manninn á spítala. Fólksbifreiðin er ónýt að sögn lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×