Barist um orkuna 5. maí 2010 18:45 Þorlákshöfn. Sýnt þykir að samningar um kísilver í Þorlákshöfn nást ekki áður en forgangur sveitarfélagsins Ölfuss að orku Hverahlíðarvirkjunar rennur út í lok mánaðarins. Mynd/Rósa J.
Sýnt þykir að samningar um kísilver í Þorlákshöfn nást ekki áður en forgangur sveitarfélagsins Ölfuss að orku Hverahlíðarvirkjunar rennur út í lok mánaðarins. Kapphlaup gæti þá hafist milli kísilversins og álversins í Helguvík um hvort verkefnið verði fyrra til að tryggja sér orkuna. Skrifað var undir samningsramma um kísilverið um miðjan febrúar en samkvæmt honum átti að ljúka viðræðum um orkusamning fyrir 15. apríl. Þessi dagsetning var sett inn til að tryggja að unnt yrði að ljúka endanlegum samningum fyrir lok maímánaðar en þá rennur út ákvæði um sérstakan forgang sveitarfélagsins Ölfuss á að fá 90 megavatta raforku fyrirhugaðrar Hverahlíðarvirkjunar til Þorlákshafnar. Að sögn Hjörleifs Kvaran, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, þykir nú sýnt að ekki muni takast fyrir þann tíma að ljúka samningum um kísilverið. Hann segir viðræður þó hafa gengið vel. Samstarfaðilinn, kanadíska fyrirtækið Timminco, á hins vegar bæði eftir að tryggja sér fjármögnun og langtímasamning um sölu afurða, sem er forsenda þess að hann geti gert bindandi orkusamning til 20 ára. Bæði Orkuveitumenn sem og Hákon Björnsson, talsmaður kvísilmálmverkefnsins, eru þó bjartsýnir á að þetta takist. Menn haldi áfram undirbúningsvinnu af fullum krafti. Norðurálsmenn, sem einnig vilja fá orku Hverahlíðar en til nota í álverinu í Helguvík, bíða á hliðarlínunni því 1. júní verður þeim hleypt að samningaborðinu á ný. Óvíst er hvort Norðurál verði þá tilbúið að skrifa upp á skuldbindandi orkusamning og gæti þá komið upp sú staða að álverið og kísilverið lendi í kapphlaupi um hvort verkefnið verði fyrra til að tryggja sér orkuna úr Hverahlíð. Eða eins og forstjóri Orkuveitunnar orðar það: Fyrstur kemur fyrstur fær, að því gefnu að menn séu tilbúnir að borga rétt verð fyrir orkuna.
Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Sjá meira