Davíð Oddsson hafnaði bón Steinda Jr. 5. maí 2010 09:30 Davíð Oddsson fór með gamanmál í útvarpi Matthildi snemma á áttunda áratugnum. Grínferill hans virðist hafa runnið sitt skeið þar sem hann vildi ekki koma fram í þætti Steinda Jr. „
Davíð passaði svo vel í þetta hlutverk. Hann átti að vera einn af nokkrum vinum persónu sem kallast Faðir Thug," segir grínistinn Steindi Jr. Þátturinn Steindinn okkar hóf göngu sína á Stöð 2 síðasta föstudag. Steindi er þekktur fyrir að fá alls kyns fólk til að koma fram í þáttunum og ætlaði að fá Davíð Oddsson, ritstjóra Morgunblaðsins, til að leika sjálfan sig í stuttu atriði. „Það var rosalegt vesen að ná í hann," segir Steindi. „Ég hringdi á hverjum einasta degi í viku - stundum oft á dag. Hann svaraði ekki. Þegar ég náði loksins í hann skellti hann á mig og hringdi til baka úr leyninúmeri. Við ræddum saman og honum þótti rosalega vænt um að fá að sleppa við þetta - eins og hann orðaði það." Sannfæringarkraftur Steinda þykir ótrúlegur og frægt er þegar hann fékk veðurfréttamanninn Sigga storm og poppstjörnuna Haffa Haff til að leika par í atriði síðasta sumar. Steindi segir sárt að Davíð hafi ekki viljað taka þátt - en er engu síður ánægður með manninn sem sló til og lék einn af fjölmörgum valdamiklum félögum Föður Thug ásamt kraftakarlinum Magnúsi Ver. „Það var enginn annar en Ástþór Magnússon, maður fólksins," segir Steindi. „Hann gerði þetta með glöðu geði. Ég þurfti reyndar að selja honum hugmyndina, en atriðið er mjög saklaust." Spurður hvenær sjónvarpsáhorfendur fá að sjá atriðið segir Steindi að það verði að koma í ljós. „Fólk verður bara að fylgjast með þættinum," segir hann að lokum. - afb
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Lífið samstarf Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Lífið Fleiri fréttir Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Sjá meira