Endurskoðun AGS veitti stjórnvöldum skjól 5. maí 2010 04:15 Steingrímur segir töf á samningum um Icesave ekki hafa stór tímabundin áhrif vegna þess skjóls sem endurskoðun AGS veitir. fréttablaðið/pjetur „
Þráðurinn á milli er óslitinn, en það eru engin tíðindi,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um viðræður um Icesave. Enn er allt á huldu um hvort og hvenær samningaviðræður verða teknar upp að nýju. Steingrímur segir forkólfa samninganefndanna hafa verið í samskiptum og sjálfur hafi hann, síðast í gær, farið yfir tölvubréf sem fóru þeirra á milli. „Menn hafa verið að fara yfir stöðuna og senda fram og til baka mat og sýn manna á þeim vandamálum sem óleyst eru og hvernig hægt er að leysa þau og hvað þurfi til að hægt sé að setjast að viðræðuborðinu.“ Gengið verður að kjörborðinu í Bretlandi á föstudag og Steingrímur segir Bretana ekki hafa verið spennta fyrir að viðræður dúkkuðu upp skömmu fyrir kosningar. Þeir hafi þó ekki sagt það berum orðum. Þá verður kosið í Hollandi innan tíðar einnig. Hann telur úrslit kosninganna geta haft áhrif á viðræðurnar að því leyti að komi nýir húsbændur þurfi að kynna þeim málið og þeir leggja nýjar línur. Hvað áhrif þess að hafa Icesave óleyst varðar segir Steingrímur að það hafi engin stór áhrif tímabundið, þar breyti endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) öllu. „Ég held að menn átti sig kannski ekki á því hve miklu hún skipti fyrir okkur. Hún veitir okkur skjól.“- kóp
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik Innlent Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Innlent Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Fleiri fréttir Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Bækurnar of leiðinlegar og forritaði stærðfræðitölvuleik „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Lögðu hald á um tug lítra fíkniefna Æfir kennarar og varað við verðstýringu Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Margir sátu hjá þegar launin voru hækkuð Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri „Nú hef ég auðvitað ekkert á móti fólki frá Nígeríu“ Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sjá meira