Einn frægasti kvenhugsuður sögunnar 25. nóvember 2010 00:01
Kvikmyndin Agora eftir Óskarsverðlaunahafann Alejandro Amenábar er frumsýnd á Íslandi um helgina. Hún fjallar um síðustu daga Rómaveldis og hetjulega baráttu heimspekingsins, stærðfræðingsins og konunnar Hypatiu fyrir því að mikilvægri þekkingu Forn-Grkkja sé bjargað frá glötun. Agora gerist í hinni fornu borg Alexandríu. Þar kennir Hypatia við platónskan skóla borgarinnar á miklum óróatímum þegar kristin trú er smám saman að ná undirtökunum og heiðingjar eiga undir högg að sækja. Það er Rachel Weisz sem leikur heimspekinginn Hypatiu en einkalíf Weisz hefur verið töluvert í kastljósinu eftir að fjölmiðlar greindu frá því að hún ætti hugsanlega í ástarsambandi við Daniel Craig. Erfiðlega hefur gengið hjá aðstandendum Agoru að koma myndinni í dreifingu þrátt fyrir að hún hafi hlotið sjö verðlaun á Goya-hátíðinni, spænsku kvikmyndahátíðinni. Hún er engu síður ein tekjuhæsta spænska myndin frá upphafi en það virðist ekki hafa kveikt í dreifingaraðilunum og því ratar hún frekar seint hingað til Íslands enda frumsýnd á síðasta ári. Myndin hefur fengið misjafna dóma hjá gagnrýnendum og þá hafa sumir bókstafstrúarmenn kvartað yfir því að Agora dragi upp fremur dökka mynd af kristnum mönnum. Sjálft Vatikanið hefur þó lýst því yfir að það sjái enga annmarka á henni en starfsmenn þess komu meðal annars að því að velja kristna texta sem lesnir eru upp í myndinni.- fgg
Mest lesið „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Lífið Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Lífið „Ég er að heiðra litla Aron“ Tónlist Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Alan Carr á Íslandi Lífið Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Lífið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið Drengurinn sem dó Lífið Geoff og Ásta Margrét nýtt par Lífið Fleiri fréttir Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Karlmennskan rís úr öskunni Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Alan Carr á Íslandi „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Geoff og Ásta Margrét nýtt par Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Vill 700 milljónir fyrir höllina Drengurinn sem dó Nakinn á kóræfingu Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Síðasti leynigesturinn opinberaður „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal X-ið bætir við sig Bolla Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ „Ekki er þetta uppáhaldslagið þitt?“ Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ „Þakklát fyrir að eiga stóran orkutank inni í litlum búk“ Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Hvernig breytirðu þér í Dag Sigurðsson? Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu Fundu ástina í stjórnarráðinu Sjá meira
Leyndardómar flugvallarins í Denver: Dómsdagsbyrgi, hakakrossar og blár hestur með rauðglóandi augu