Einar er í góðum höndum 25. nóvember 2010 17:00 Árni Þórarinsson er ákaflega ánægður með Hjálmar Hjálmarsson í hlutverki Einars blaðamanns en tökur á Tíma nornarinnar standa núna yfir.Fréttablaðið/Vilhelm
Rithöfundurinn Árni Þórarinsson rambaði inn á tökustað Tíma nornarinnar í fyrradag en sjónvarpsþáttaröð Friðriks Þórs Friðrikssonar er einmitt byggð á samnefndri bók höfundarins um Einar blaðamann. Árni segir það hafa verið erfitt að skrifa handritið sjálfur. Tökur á Tíma nornarinnar standa yfir um þessar mundir en samnefnd bók, sem kom út fyrir fimm árum, hefur áður verið sett upp sem útvarpsleikrit og flutt á Rás 1. Árni Þórarinsson, höfundur bókarinnar og handritshöfundur þáttanna, segir alltaf fróðlegt að koma á tökustað. Hann dáist að þeirri þolinmæði sem kvikmyndagerðarmenn búi yfir. „Og mér leist bara vel á það litla sem ég sá." Höfundurinn er einnig ánægður með Hjálmar Hjálmarsson í hlutverki Einars blaðamanns, telur leikarann líkjast Einari eins og mögulegt er. „Hann hefur forvitið yfirbragð og nær alveg húmornum." Árni skrifaði sjálfur handritið og fékk góðar ábendingar hjá bæði Hjálmari og leikstjóranum Friðriki Þór. Hann viðurkennir að það hafi ekki verið auðvelt verk, kaflar sem honum hafi þótt vænt um voru látnir víkja, öðru bætt inn í og atburðarásinni breytt til að laga bókina að sjónvarpsforminu. „Sumt var sársaukafullt, annað skemmtilegt og skapandi, það var forvitnilegt að gera eitthvað nýtt úr þessu gamla efni." Sjöunda bók Árna um Einar blaðamann, Morgunengill, kom nýverið út og hefur fengið lofsamlega dóma. Spennuþrungið íslenskt samfélag leikur lykilhlutverk í bókinni og Árni segir það hafa verið meðvitað. „Spennufléttan tekur óvenjusterk mið af samtímanum, samfélagið er eiginlega dregið út úr aukahlutveri sínu og sett í aðalhlutverk." Íslenskir krimmaaðdáendur eru ekki þeir einu sem hafa tekið bókum Árna opnum örmum því Frakkar eru einstaklega hrifnir af honum. Árni vill ekki meina að það sé vegna útlitsins þótt það minni eilítið á franskt ljóðskáld. „Auðvitað er merkilegt að sjá samtímis á metsölulistum glæpasagna í Frakklandi kannski tvo eða þrjá íslenska höfunda. Arnaldur er auðvitað fastagestur og svo slæðist ég þarna inn, Jón Hallur og Stefán Máni," segir Árni sem hefur ekki farið varhluta af Stieg Larsson-markaðsvæðingunni. „Ég, rétt eins og aðrir íslenskir glæpasagnahöfundar, við höfum örugglega allir lesið þær vangaveltur hvort við værum næsti Stieg Larsson." Árni kann enga eina skýringu á því af hverju norrænar glæpasögur njóti svona mikillar hylli. „Ég hef tekið þátt í málþingum um norrænar glæpasögur og vinsældir þeirra og menn hafa ekki getað komið sér saman um neinn einn hlut. Að mínu mati, fyrir utan framandi sögusvið, leikur það stórt hlutverk að þrátt fyrir að Norðurlöndin skilgreini sig öll sem velferðarþjóðfélag þá eru þau einnig gróðrarstía fyrir glæpi og spillingu." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum Lífið Olivia Rodrigo á Íslandi Lífið GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Lífið Skipta um stríðsguð vegna alvarlegra meiðsla Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Lífið Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Lífið Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Lífið Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Óskarsverðlaunahafinn Brenda Fricker látin Bíó og sjónvarp Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Lífið Fleiri fréttir Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Sjá meira