Lífið

Megan eykur sjálfstraust eiginmannsins

Brian Austin Green og Megan Fox. MYND/Cover Media
Brian Austin Green og Megan Fox. MYND/Cover Media

Leikarinn Brian Austin Green lofar eiginkonu sína, leikkonuna Megan Fox, fyrir að auka sjálfstraustið hans og hvetja hann til að standa sig vel.

Brian og Megan byrjuðu saman fyrir sex árum og hafa verið saman og sundur síðan þá. Þau komu mörgum á óvart með því að gifta sig óvænt á Hawaii fyrr á þessu ári en Brian segir að það sé besta ákvörðun sem hann hefur tekið í lífinu til þessa.

Megan gerir Brian að betri manni og eflir hann til góðra verka að hans mati.

„Þegar ég og Megan hittumst var ég nýskilinn við barnsmóður mína og var án sonar míns. Það síðasta sem ég hafði áhuga á að takast á við var nýtt ástarsamband. Síðan þróuðust hlutirnir þannig að ég var hræddur við allt. Hræddur við fjölmiðla, fólk og hélt mig heima við," sagði Brian.

„Megan hjálpaði mér að takast á við óttann og að fá sjálfstraustið á ný. Við pössum einfaldlega fullkomlega saman," sagði hann.

Megan var 18 ára þegar Brian hitti hana og féll fyrir henni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.