Stígur vals í Sherlock Holmes 27. október 2010 05:30 Einar Aðalsteinsson mun stíga vals í stórri hópsenu fyrir kvikmyndina Sherlock Holmes 2 ásamt þeim Robert Downey Jr., Jude Law og Stephen Fry. Fréttablaðið/Arnþór „
Þetta er svona „Einar valsar inn í mynd – Einar valsar út úr mynd“-atriði,“ segir Einar Aðalsteinsson leikari. Hann tekur þátt í umsvifamikilli hópdanssenu í stórmyndinni Sherlock Holmes 2 í leikstjórn Guy Ritchie, fyrrverandi eiginmanns Madonnu. Tökurnar fara fram í hinu sögufræga Elstree-myndveri í Hertford-skíri en þar voru meðal annars Stjörnustríðsmyndir George Lucas gerðar. Meðal þeirra sem taka þátt í umræddri töku eru Hollywood-stjörnurnar Robert Downey Jr. og Jude Law auk Stephens Fry. Einar sagði í samtali við Fréttablaðið að þetta væri mjög stór sena en um er að ræða stórt teiti þar sem gestirnir stíga þaulæfðan og frekar trylltan vals. „Robert Downey á að dansa eitthvað með okkur en ég átta mig nú ekki alveg á samhenginu enda ekki búinn að lesa handritið.“ Einar segist verða í mjög flottum búningi, smart kjólfötum með yfirvaraskegg sem hann fékk sérstaklega hannað fyrir sig. Og hann kveðst ákaflega heppinn með dansfélaga. „Ég kann alveg eitthvað að dansa en hún er sko atvinnudansari, er bæði menntuð leikkona og dansari.“ Að sögn Einars er umfangið gríðarlega mikið fyrir tökurnar sem hefjast á föstudaginn og það var ekkert hlaupið að því að fá hlutverkið, þótt lítið sé. „Kennarinn minn í leiklistarskólanum í London benti á mig en svo þurfti ég senda ferilsskrá, mynd og myndband. Maður þurfti að fara í gegnum allt ferlið enda voru þau að leita að mjög ákveðnu útliti.“ Einar upplýsir jafnframt að launin séu mjög góð. „Þetta er vel borgað starf miðað við ábyrgð.“ Einar hefur haft í nægu að snúast frá því að hann útskrifaðist úr leiklistarskólanum Lamda í London. Hann setti upp leikverkið Vakt á sviðslistahátíðinni artFart í sumar og mun leika stórt hlutverk í sjónvarpsþáttaröðinni Tíma nornarinnar eftir Friðrik Þór Friðriksson sem byggir á samnefndri bók Árna Þórarinssonar. Leikarinn ungi viðurkennir hins vegar að hugur hans sé aðallega við tökurnar í Englandi, enda ekki á hverjum degi sem manni gefst tækifæri til að vera á sama tökustað og Robert Downey eða Jude Law. freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Lífið Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Lífið „Best að vera allsber úti í náttúrunni“ Tíska og hönnun „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ Lífið Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Lífið Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Lífið Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Lífið Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Lífið Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Lífið Fleiri fréttir Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Próteinbollur að hætti Gumma kíró Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Hanna Katrín heiðursgrillari á Kótelettunni „Pabbi minn vakir yfir mér“ Heitustu skvísur landsins fögnuðu íslenskri húðvöru Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Skákborðsréttir nýjasta matartískan Tímalausar og fallegar brúðargjafir Þórdís Elva fann ástina í örmum poppstjörnu Eins og ef Laddi hefði hvatt krakka til að reykja krakk eða sígarettur Perry og Bloom saman á snekkju Bezos Vissu fyrir löngu að þau vildu verja ævinni saman Aðalsteinn og Elísabet selja íbúðina Sumarsalat sem lætur bragðlaukana dansa Bjössi og Dísa í carnival stemningu í miðbænum Samdi CIA lag Scorpions, Wind of Change, til að fella Sovétríkin? Stjörnulífið: „Grín sem gekk allt of langt“ „Síðustu tíu árin hafa verið erfið“ „Það segir eitthvað að þetta sé fjórtánda sumarið“ Varð mjög hræddur en fann huggun í húmornum Krakkatían: Tölur, mýs og tónlist Julian McMahon látinn Var orðið að spurningu um líf og dauða Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Aron Kristinn orðinn pabbi Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Sjá meira