Lífið

Sonur Beckham hjóna hannar gleraugnalínu

David og Victoria Beckham. MYND/Cover Media
David og Victoria Beckham. MYND/Cover Media

David og Victoria Beckham styðja son sinn, Romeo sem er 8 ára, og ákvörðun hans, sem er að hanna eigin sólgleraugnalínu fyrir krakka á hans aldri.

„Romeo er meðvitaður um hvað er í tísku og hefur sterkar skoðanir á því hvað er flott og hvað ekki þrátt fyrir ungan aldur. Hann bað sjálfur um að fá að taka að sér þetta verkefni," er haft eftir heimildarmanni nákominn Beckham fjölskyldunni.

Victoria var efins þegar barnið stakk upp á þessu en þegar hún sá að drengnum var alvara ákvað hún að styðja hann alla leið með sólgleraugnalínuna.

David og Victoria eiga þrjú börn. Brooklyn, 11 ára, Romeo, 8 ára, og Cruz, 5 ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.