Lilja Mósesdóttir: Margir sagt sig úr VG vegna Magma 24. maí 2010 15:38 Lilja Mósesdóttir hefur fengið harða gagnrýni frá grasrótinni út af Magma málinu. „
Ég hef fengið mjög harðorða gagnrýni frá mínum stuðningsmönnum og margir hafa sagt sig úr flokknum vegna málsins," segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um óánægju með kaup kanadíska orkufyrirtækisis Magma á hlut Geysis Green Energy á HS Orku. Þingmaðurinn telur óánægjuna meðal annars útskýra mikið fylgistap Vinstri grænna í Reykjavík en borgarstjórnarflokkurinn hefur tapað mestu fylgi samkvæmt skoðanakönnunum sem hafa verið gerðar undanfarnar vikur. Aðspurð hversu margir hafi sagt sig úr flokknum, segist Lilja ekki vera viss um það. Hún bætir svo við: „Svo má vera að flokksmennirnir hafi ekki farið alla leið og sagt sig úr flokknum." Það er ljóst að grasrótahreyfingin innan flokksins er mjög ósátt við Magma kaupin og vilja margir meina að þingflokkurinn hafi látið undir höfuð leggjast að stöðva áformin. Lilja bendir hinsvegar á að Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, reyndi að fá lífeyrissjóðina til liðs við sig til þess að fjárfesta í hlutnum á síðasta ári. Það gekk þó ekki upp og því fór sem fór. Annað og umdeilt atriði er þjóðerni Magma, sem er kanadískt að uppruna. Fyrirtækjum utan EES svæðisins er ekki heimilt að fjárfesta á Íslandi. Magma kunni þó ráð við því og stofnaði útibú í Svíþjóð sem aftur fjárfesti í HS orku. Málið var tekið fyrir í nefnd um erlendar fjárfestingar á Alþingi. Þar komst nefndin að þeirri niðurstöðu að fyrirtækið mætti fjárfesta í gegnum sænska fyrirtækið sem Lilja kallar skúffufyrirtæki. „Mér finnst nefndin hafi farið mjög langt með að auðvelda Magma að koma hingað inn til lands og fjárfesta," segir Lilja sem gagnrýnir niðurstöðu nefndarinnar harðlega enda fordæmið slíkt að nú geta fyrirtæki víðsvegar um heiminn fjárfest í orkulindum hér á landi, svo lengi sem fyrirtækin stofna félög innan EES svæðisins.
Mest lesið Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara Innlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent „Það er ekki Stóra-Bretland heldur litla England“ Erlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Stjórnin líklega fallin en staðan afar þröng Erlent Fleiri fréttir Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Sjá meira