Lífið

Aulalöggurnar Will Ferrell og Mark Wahlberg

Will Ferrell og Mark Wahlberg leika tvær misheppnaðar löggur í The Other Guys.
Will Ferrell og Mark Wahlberg leika tvær misheppnaðar löggur í The Other Guys.

Allen Gamle og Terry Hoitz eru „hinar" löggurnar. Þeir fá auðveldustu málin, keyra ekki um á hraðskreiðum bílum né fylla líkama þjófa af blýi á götum úti. Hins vegar eru Danson og Higsmith slíkar hetjur sem vernda borgara frá óþjóðalýð og beita til þess hefðbundnum Hollywood-stælum. En dag einn gefst Gamble og Hoitz kærkomið tækifæri til að sýna hvað í þeim býr.

Það eru þeir Will Ferell og Mark Wahlberg sem leika aðahlutverkin í kvikmyndinni The Other Guys en hún hefur fengið frábæra dóma og góða aðsókn. Í hlutverkum hasarhausanna eru þeir Rock og Samuel L. Jackson en leikstjóri er Adam McKay. Þá leikur Eva Mendez eiginkonu Will Ferrell sem býður upp á nokkur kostuleg augnablik.

Hér er sýnishorn fyrir The Other Guys.

Heimildarmyndin Future of Hope eftir Henry Bateman er einnig frumsýnd um helgina. Hún fjallar um íslenska efnahagshrunið og hvort eitthvað jákvætt geti hugsanlega komið út úr því. Bateman og framleiðandinn Heather Millard höfðu svo mikinn áhuga á að gera þessa mynd að þau dvöldust í tjaldi fyrst eftir komuna til Íslands. Meðal þeirra sem er rætt við í myndinni má nefna Vigdísi Finnbogadóttur og Andra Snæ Magnason.

Hér er sýnishorn fyrir Future of Hope.

Pétur Jóhann Sigfússon þreytir frumraun sína sem rödd í teiknimyndinni Aulinn Ég en það er Steve Carell sem talar inn á ensku útgáfuna. Myndin hefur fengið afbragðsgóða dóma og er meðal annars í þrettánda sæti yfir tekjuhæstu teiknimyndir allra tíma.

Hér er sýnishorn fyrir Aulinn Ég.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.