Seiðandi samspil snillinga 25. febrúar 2010 04:30 Toumani og Ali. Auk þeirra spilaði bassaleikari Buena Vista Social Club, Orlando „Cachaíto“ Lopez, á nýju plötunni, en hún geymir síðustu upptökur Alis og Orlandos.
Í vikunni kom út ný samstarfsplata Ali Farka Touré og Toumani Diabaté. Ali, sem lést árið 2006, var eitt stærsta nafn heimstónlistarinnar, en stjarna Toumanis hefur risið jafnt og þétt síðustu ár. Hann er mjög eftirsóttur hljóðfæraleikari og spilaði meðal annars inn á plötu Bjarkar, Volta. Trausti Júlíusson lagði við hlustir. Plötunni Ali & Toumani, með malísku tónlistarmönnunum Ali Farka Touré og Toumani Diabaté, hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu. Fyrri plata þeirra félaga In The Heart Of The Moon sem kom út fyrir fimm árum sló rækilega í gegn og hlaut meðal annars Grammy-verðlaun.Síðustu upptökur Ali Farka TouréAli & Toumani var tekin upp á þremur dögum í Livingston-stúdíóinu í London sumarið 2005. Auk gítarleikarans Alis og Toumanis, sem er þekktasti kora-leikari heims (kora er vestur afrískt strengjahljóðfæri, stundum kallað „belggítar“), spilaði kúbanski bassaleikarinn Orlando „Cachaíto“ Lopez á plötunni og sonur Alis, Vieux Farka Touré spilaði á slagverk í þremur lögum. Ali lést í mars 2006 úr beinkrabbameini og Orlando sem var meðal annars bassaleikari Buena Vista Social Club, lést í febrúar 2009. Ali & Toumani er síðasta platan sem þeir léku inn á. AfríkublúsBæði Ali Farka Touré og Toumani Diabaté eru á meðal þekktustu tónlistarmanna Afríku. Ali fæddist 1939. Hann byrjaði að spila á gítar eftir að hann heyrði malíska gítarleikarann Keita Fodeba spila árið 1956. Ali hljóðritaði nokkrar plötur á áttunda áratugnum fyrir frönsku útgáfuna Sonafric, en vakti ekki athygli að ráði utan heimalandsins fyrr en World Circuit endurútgaf valið efni af þeim seint á níunda áratugnum. Gítarstíll Ali Farka Touré þykir magnaður, en hann á margt sameiginlegt með bandarískum blúsgítarleikurum á borð við John Lee Hooker. Ali gerði nokkrar plötur fyrir World Circuit, síðust þeirra var snilldarverkið Savane sem kom út árið 2006, nokkru eftir að hann lést. Vann með Björk og DamonToumani er fæddur 1965. Hann er sonur kora-leikarans Sidiki Diabaté sem hljóðritaði fyrstu kora-plötu sögunnar árið 1970. Toumani tók sína fyrstu plötu, Kaira, upp í London árið 1988. Á henni er hann einn með hljóðfærið. Auk þess að leika hefðbundna malíska tónlist hefur Toumani unnið töluvert með vestrænum tónlistarmönnum. Hann gerði plötu með ameríska blúsaranum Taj Mahal, tók þátt í Mali-plötu Damons Albarn og spilaði inn á Volta með Björk, svo dæmi séu tekin. Í kjölfarið koma hann fram á nokkrum tónleikum á Volta-túrnum við mikinn fögnuð. Toumani þykir hafa náð meiri færni á koruna heldur en nokkur annar. Hans nýjasta sólóplata er The Mandé Variations frá 2008. Sérstakur seiðurAli og Toumani eru hvor frá sínu héraðinu í Malí. Ali er að norðan, en Toumani að sunnan. Á Ali & Toumani leika þeir þjóðlög frá báðum héruðum. Þó að Ali hafi verið flottur söngvari þá er tónlistin hér að langmestu leyti án söngs. Það er samspil þessara tveggja snillinga sem galdrar fram þann sérstaka seið sem einkennir plötuna. Ali pikkar grunninn og Toumani dansar yfir með korunni. Ali var orðinn sjúkur maður þegar platan var tekin upp, en harkaði af sér. Hann vildi klára verkið. Platan hefur fengið frábæra dóma, til dæmis fullt hús í Songlines, Guardian og Observer.
Mest lesið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Lífið Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Lífið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum Lífið Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Lífið Allir og amma þeirra í bókaklúbb Lífið Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Fleiri fréttir Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Sjá meira