Fátækir panta pitsu á svið 16. september 2010 15:30 Fátæka leikhúsið.
Fátæka leikhúsið frumsýnir á morgun leikritið Pizzasendillinn eftir Elísabetu Jökulsdóttur, á Faktorý við Smiðjustíg, sem áður var Grand Rokk. Tilefnið er tuttugu ára ritafmæli Elísabetar um þessar mundir. Verkið skrifaði hún árið 1997 fyrir leikritunarsamkeppni Borgarleikhússins. Leikritið hreppti ekki hnossið og lá óhreyft þar til það varð á vegi Heiðars Sumarliðasonar leikstjóra, sem blés af því rykið. „Við Elísabet vorum saman í fræðum og framkvæmd við LHÍ,“ útskýrir Heiðar, „og höfum haldið góðu sambandi síðan við útskrifuðumst fyrir að verða tveimur árum. Ég hef reyndar aldrei verið mjög hrifin af verkum Elísabetar sem slíkum og verið hreinskilinn við hana með það. En síðan las ég verk eftir hana sem verður sett upp í Útvarpsleikhúsinu í vetur og varð stórhrifinn. Ég spurði hana hvort hún lumaði á fleiri verkum og þá lét hún mig fá Pizzasendilinn, sem ég varð líka mjög hrifinn af og ákvað að setja upp.“ Leikritið fjallar um fjölskyldu við Melhaga sem er hleypt í uppnám þegar pitsusendill ber að dyrum með sendingu sem enginn kannast við að hafa pantað. Sendillinn ætlar hins vegar að koma sendingunni til skila hvað sem tautar og raular og flækist inn í líf fjölskyldunnar, sem er ekki öll þar sem hún er séð. Fátæka leikhúsið er grasrótarhópur, sem eins og nafnið gefur til kynna hefur ekki mikið fé á milli handanna. „Þetta er að öllu leyti gert í sjálfboðavinnu,“ segir Heiðar. „Við vorum svo heppin að fá frítt húsnæði og ég held að hæsti útgjaldaliðurinn hingað til hafi verið strætófargjaldið fyrir okkur Elísabetu upp í Útvarpshús þar sem við fórum í viðtal.“ Að sögn Heiðars er þetta eina leiðin fyrir ungt leiklistarfólk til að koma sér á framfæri, ekki síst leikstjóra. „Það hafa svo margir útskrifast eftir tilkomu fræða og framkvæmda við LHÍ og það komast miklu færri að en vilja við stóru leikhúsin. Eina leiðin er því að gera hlutina sjálfur og vinna nógu mikið. Það skilar sér á endanum,“ segir Heiðar, sem hefur leikstýrt fjórum verkum eftir að hann útskrifaðist. Leikarar í Pizzasendlinum eru Þóra Karítas Árnadóttir, Magnús Guðmundsson, Saga Garðarsdóttir og Hjörtur Jóhann Jónsson. Almennt miðaverð er 1000 krónur en 500 krónur fyrir fátæka. Hægt er að panta miða með því að senda póst á fataek@gmail.com eða hringja í 845-2387. bergsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Barnastjarnan Kaylee Hottle látin Lífið Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið Lífið Feimnin við að rukka: Ekki treysta á „ég borga þetta og þú næsta“ Áskorun „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Lífið Rýnt í stikluna: Smekkfull stikla af ofurhetjum Bíó og sjónvarp Uppskriftir: Axel bauð í þriggja rétta grillveislu Lífið samstarf „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Lífið Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Lífið Stríðið um baðstrendur Ítalíu Lífið Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Lífið Fleiri fréttir Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Íslendingar sópa að sér verðlaunum í dansi Desiigner handtekinn eftir að hafa elt konu vopnaður hamri Fyrsta verk Ella Egils selt á fimm þúsund krónur en verk dóttur hans á tífalt meira Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Sjá meira