Þorsteinn Joð með soninn Tómas Joð í vinnu 11. júní 2010 17:45 Góðir saman, Tómas J. og Þorsteinn J. „
Jú, hann hefur alveg vit á þessu. Hefur náttúrulega reynslu af því að sjá um svona stórmót og svo er hann duglegur að mæta á leiki. Við hittumst líka oft í mat á meðan á ensku úrvalsdeildinni stendur og ræðum um hvað er að gerast," segir Tómas J. Þorsteinsson, sonur Þorsteins Joðs Vilhjálmssonar. Hann verður föður sínum innan handar í HM-þáttum RÚV en keppnin hefst í dag. Tómas segir einfaldast að útskýra starf sitt þannig að hann sé aðstoðarmaður Þorsteins. „Ég hringi í fólk til að koma í þáttinn og fylgist síðan með leikjum og kem með einhverja punkta úr þeim." Tómas er leikmaður með meistaraflokki Fylkis í Pepsi-deildinni. Hann hefur verið fastamaður það sem af er tímabils og meðal annars leikið í stöðu vinstri bakvarðar en það er einmitt sama staða og Þorsteinn lék í á árum áður með Fram. „Ég er meira fyrir að hlaupa upp og niður kantinn og gefa fyrir, mér skilst að pabba hafi meira verið plantað þarna til að stoppa leikmenn og tuddast aðeins." Og það vekur óneitanlega athygli að Tómas skuli leika með Fylki þar sem pabbi hans er gallharður Framari. Tómas segir þetta eiga sér landfræðilega skýringu, hann hafi einfaldlega átt heima í hundrað metra fjarlægð frá Fylkisvellinum í Árbænum. Tómas kláraði annað árið í umhverfis- og byggingarverkfræði við Háskóla Íslands í sumar en segir að hann sé um þessar mundir í draumastarfinu. „Þetta getur ekki verið betra fyrir knattspyrnumann, að horfa á fótbolta og fjalla um fótbolta, ég gæti hreinlega ekki hugsað mér betri vinnu."
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sjá meira