Lífið

Konur sjúkar í fræga menn

Enrique Iglesias. MYND/Cover Media
Enrique Iglesias. MYND/Cover Media

Spænski söngvarinn Enrique Iglesias, 35 ára, segir að frægðin sé lykillinn að konum.

Söngvarinn, sem er dýrkaður um heim allan, hefur átt í ástarsambandi við tennisstjörnuna Önnu Kournikova, undanfarin ár.

Enrique hefur oftar en ekki rætt opinberlega um ástarmálin sín og hve erfið unglingsárin voru hjá honum þegar stelpur voru annars vegar.

Eftir að hann öðlaðist frægð gengu kvennamálin upp hjá stráknum.

„Mér er sama hvað fólk segir. Frægð er það sem konur vilja," sagði Enrique sem engin stúlka kærði sig um að fara með á lokaballið í gagnfræðiskóla þannig að hann endaði með því að fara aleinn og skemmti sér eftir því.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.