Dæmir í bandarískri fegurðarsamkeppni 15. október 2010 06:00 Baldvin Jónsson hefur unnið að markaðssetningu lambakjöts í Bandaríkjunum en vendir sínu kvæði í kross um helgina og dæmir í fegurðarsamkeppni. Hann fetar þar með í fótspor Ingibjargar Egilsdóttur, sem var dómari í fyrra. fréttablaðið/heiða „
Ég sagði nú einhvern tíma að það hefðu verið fegurðarsamkeppnir sem komu manni á bragðið með lambið,“ segir Baldvin Jónsson, verkefnastjóri hjá Bændasamtökunum. Baldvin hefur verið fenginn til að dæma í fegurðarsamkeppninni Miss Sinergy sem hefst í Washington í dag. Baldvin hefur unnið að markaðssetningu lambakjöts og annarra íslenskra matvæla undanfarin ár auk þess að koma að skipulagningu Food and Fun-hátíðarinnar. Þá er hann ekki ókunnugur dómnefndarstörfunum og var um árabil dómari í Ungfrú Ísland. „Ég átta mig ekki á hvers vegna ég var beðinn um að taka þetta að mér en þetta er mikill heiður,“ segir Baldvin. „Keppnin er mikill viðburður hérna í borginni, þar sem er verið að fara að safna fjármunum fyrir brjóstakrabbameinsrannsóknir. Gríðarlega miklum fjármunum er safnað í kringum þessa miklu hátíð.“ Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Íslendingur er á meðal dómara í keppninni, því eins og Fréttablaðið greindi frá í fyrra var fegurðardrottningin og fyrirsætan Ingibjörg Egilsdóttir dómari í fyrra. Henni hefur verið boðið að vera sérstakur heiðursgestur í ár. En ætlarðu að gefa keppendunum að borða? „Nei, við erum ekki komin svo langt að við eigum fyrir því,“ segir Baldvin. „Það hefði verið mjög snjallt að hafa íslenskan mat á boðstólnum, en það gerist kannski á næsta ári.“ - afb
Mest lesið Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Lífið Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Lífið Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram Lífið Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Lífið Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Lífið „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Lífið Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Lífið Kallar próteinið gull og segir kreatín leyndan lykil að betri líðan Lífið samstarf Hannaði frægasta brúðarkjól ársins Tíska og hönnun Prjónarar missa sig yfir ponsjói Jökuls Tíska og hönnun Fleiri fréttir Gugga gestur í afmælisboði Kanye West Söguleg skiltaskipti á Ölstofunni Urður trúlofuð og mætt aftur á Instagram „Grét meðan verið var að dæla í mig blóðinu” Fjárfestir og fyrirsæta selur útsýnisíbúð Útskiptin miklu og svikula elítan Stjörnulífið: Halla og Eiður Smári ástfangin á Þingvöllum Jökull í Kaleo kynnti nýju kærustuna Kúrekahattar, sólskinsbros og forsetahjón í banastuði á Þingvöllum „Mér finnst þetta nánast hafa komið fyrir einhvern annan en mig“ Frá Kalda bar í vín með Norah Jones, Jökli í Kaleo og Tony Parker „Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“ Krakkatía vikunnar: Dorrit, fjallkonan og lítilmenni Blönduðu áður óséðu efni frá aldamótum við upphitunaratriðið Svona er stemningin á Þingvöllum í dag Fólk streymi inn í þjóðgarðinn í rjómablíðu Gull og gimsteinar leynast víða Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Fréttatía vikunnar: Kæra, Hafþór og Florencia Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Hilmir Snær og Vala í aðalhlutverkum í „öskugráum hjónaleik“ Búast við fimmtán gráðum og sól á Þingvöllum „Ég verð bara að gera það, hvort sem mér líkar betur eða verr“ Íhugaði meiðyrðamál vegna nafnlausra Facebook-færslna Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Hönnuðir nota blóm á mjög óvenjulegan hátt Opnar sig um sambandið við Harry Styles: „Mjög þung byrði og ekki eitthvað sem ég öfunda hann af“ Hvað eiga antisportistar að gera meðan HM stendur yfir? Barnastjarna úr Lilo&Stitch og The Ring látin Sjá meira