Treysta á Baltasar og Tom Hanks 30. október 2010 13:30 Baltasar Kormákur er á lista með Tom Hanks, Juliu Roberts, Denzel Washington og Ron Howard yfir kvikmyndagerðarmenn sem Universal bindur miklar vonir við.
Kvikmynd Baltasars Kormáks, Contraband, er í hópi þeirra níu mynda sem framleiðslufyrirtækið Universal hefur sett í sérstakan forgang fyrir árið 2012. Myndirnar eru sagðar í hópi metnaðarfyllstu verkefna Universal það árið en þetta kemur fram á vefsíðunni deadline.com. „Það er gott að þeir hafa trú á þessu verkefni,“ segir Baltasar í samtali við Fréttablaðið en hann er nú kominn til Los Angeles. Búið er að ákveða hvenær Contraband verður frumsýnd en það verður við hátíðlega athöfn 16. mars 2012 og má reikna með að mikið verði um dýrðir þegar þau Kate Beckinsale, Mark Wahlberg og Baltasar Kormákur ganga eftir rauða dreglinum í Hollywood. Baltasar er ekki í slæmum félagsskap á þessum lista, því á honum er að finna nýjustu kvikmynd Tom Hanks sem heitir Larry Crowne. Hanks mun bæði leikstýra myndinni og leika aðalhlutverkið á móti Juliu Roberts. Þá er Safe House, ný kvikmynd Denzels Washington einnig á þessum lista og sömuleiðis Ron Howard með nýja kvikmynd og einnig 47 Ronin sem skartar Keanu Reeves. Baltasar er þegar farinn að ráða til sín fólk í tökuliðið og er á fullu í leikaraprufum. „Ég fer annaðhvort til New Orleans eða Panama um helgina og bara að ganga frá að ráða fólk í tökuliðið.“ Baltasar staðfestir að hann hafi ráðið Tony Fanning sem leikmyndahönnuð en hann vann meðal annars við Brothers sem Sigurjón Sighvatsson framleiddi og var listrænn stjórnandi kvikmynda á borð við Munich og War of the Worlds eftir Steven Spielberg.- fgg
Mest lesið Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Lífið 50+: Hræðslan við að eldast útlitslega og góð ráð Áskorun Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið Echoes of the End: Íslensk frumraun undir góðum áhrifum stríðsguðsins Leikjavísir Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Lífið Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum Lífið Anton Corbijn heiðursgestur RIFF Lífið „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Lífið Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Lífið samstarf Fleiri fréttir Anton Corbijn heiðursgestur RIFF Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Fyrsta tónlistarfólkið á almyrkvahátíðinni kynnt til leiks Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Aldraður boltasækir steig síðasta dansinn Suðrænn og ferskur þeytingur að hætti Jönu Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar „Við ætlum að hlaupa fyrir hana Birtu okkar“ Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Superstore-leikari látinn Mugison gekk í það heilaga við litla útiathöfn Krakkatían: Afmælistónleikar, maraþon og bílpróf Myndaveisla: Samstaða og stolt í algleymingi í Gleðigöngunni Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Bay segir skilið við Smith Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Endar örugglega sem 83 ára drottning í Gleðigöngunni Hver er Endakallinn frá Ibiza? Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Sjá meira