Fjórar plötur á einu ári 17. mars 2010 02:00 Dathi Dalvíkingurinn Daði Jónsson ætlar að gefa út fjórar plötur á þessu ári. „
Þetta er örugglega alltof mikið til að gefa út en ég ætla samt að gera það," segir Dalvíkingurinn Daði Jónsson, eða Dathi, sem ætlar að gefa út fjórar plötur á þessu ári. Sú fyrsta, Self Portrait, er nýkomin út. „Um áramótin fyrir ári síðan setti ég mér áramótaheit um að ég ætlaði að byrja að taka upp þrjá diska á síðasta ári," segir Daði. „Ég byrjaði á þeim fyrsta í febrúar og kláraði hann í október. Ég byrjaði á öðrum í september og á þriðja 30. desember þannig að áramótaheitið stóðst. Ég held að það sé það eina í lífi mínu sem hefur staðist." Daði, sem er 36 ára, bjó í Englandi í tíu ár og safnaði þar bunka af lögum í sarpinn. Hann flutti heim til Dalvíkur fyrir þremur árum og var í nokkurn tíma að finna rétta mannskapinn til að taka upp með honum tónlist. Eftir að hann fékk að taka upp í nýju hljóðveri Gunnlaugs Helgasonar, bassaleikara í Pöpunum sem býr á Ólafsfirði, var ekki aftur snúið. Nýja platan og sú næsta eru samhangandi og fjalla þær um myrku hliðarnar á tilverunni. Þriðja platan verður samstarfsverkefni sem nefnist The Two Trees sem fjallar um umhverfismál en á þeirri fjórðu verður ástin í fyrirrúmi. „Ég er alveg með tilbúnar átta plötur í viðbót. Ég verð bara að koma þessu frá mér svo ég geti farið að „funkera" almennilega," segir þessi afkastamikli tónlistarmaður. Hægt er að kaupa nýju plötuna í verslun 12 Tóna og á netsíðunni Gogoyoko.com. - fb
Mest lesið Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Lífið Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Lífið Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Lífið Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Menning Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Lífið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ekki ósanngjarnt gagnvart sjálfri sér heldur börnunum Vilja láta svipta ekkju leikarans yfirráðum yfir dánarbúinu Gagnrýni á John Snorra ómálefnaleg og slitin úr öllu samhengi Fréttatía vikunnar: Infantino, hvítt efni og svikahrina Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Sjá meira