Ráðin í vinnu hjá indverskum svifvængjaframleiðanda 3. ágúst 2010 09:00 Aníta Hafdís Björnsdóttir var ráðin kynningarfulltrúi indversks fyrirtækis sem hannar svifvængi. Hún hefur sjálf stundað svifvængjaflug í þrjú ár og hefur ferðast víða í þeim tilgangi. „
Ég rak augun í frétt í Cross Country, sem er breskt tímarit sem fjallar um svifvængjaflug, um nýtt fyrirtæki á Indlandi sem var að leita að vængjahönnuðum og tilraunaflugmönnum,“ segir Aníta Hafdís Björnsdóttir, sem var nýlega ráðinn kynningarfulltrúi indverska fyrirtækisins Sun Paragliders sem framleiðir svifvængi. „Ég skrifaði þeim af rælni vitandi að ég gæti hvorugt, en spurði hvort þá vantaði ekki flugmann sem kynni smá í grafískri hönnun og mikið í að hanga á Facebook. Þeir svöruðu um hæl og sögðu að forstjórinn hefði fylgst með blogginu mínu og að þeir vildu fá mig til liðs við sig,“ Aníta Hafdís hefur stundað svifvængjaflug frá árinu 2007 og frá því í desember hefur hún ferðast um heiminn ásamt vinkonu sinni, Ásu Rán Einarsdóttur, og stundað íþróttina af miklum móð. Aðspurð segir Aníta starfið hjá Sun Paraglide vera sannkallað draumastarf enda geti hún sinnt áhugamálum sínum á sama tíma. „Ég fæ að skrifa um vörurnar og hanna þær, ferðast og fljúga og vona bara að ég fái að sinna þessu starfi eins lengi og hægt er,“ segir Aníta glöð í bragði. Áætlað er að nýjar vörur frá fyrirtækinu komi á markaðinn snemma á næsta ári og mun Aníta þá taka þátt í kynningarstarfinu. Í haust heldur hún þó til Grikklands þar sem hún mun vinna hjá þarlendu ferðaþjónustufyrirtæki. „Þetta er fyrirtæki sem fer með svifvængjaflugmenn í skipulagðar flugferðir um Grikkland. Ég verð bílstjóri og mun skutla flugmönnunum á flugstað og sækja þá svo aftur þar sem þeir lenda. Og ég fæ auðvitað líka að fljúga eitthvað sjálf,“ segir hún að lokum. sara@frettabladid.is
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira