Hannar nokkrar línur í einu 25. maí 2010 12:30 Arna Sigrún Haraldsdóttir og Edda Guðmundsdóttir hanna undir merkjum Black. Fréttablaðið/Stefán
Fatahönnuðirnir Edda Guðmundsdóttir og Arna Sigrún Haraldsdóttir eru þær fyrstu til að hanna undir merkjum Black-merkisins. Ekki er ljóst hvað af hönnuninni fer í framleiðslu. Black er verkefni sem miðar að því að hjálpa ungum fatahönnuðum að koma línum sínum á almennan markað. Linda Björg, fagstjóri Fatahönnunardeildar LHÍ, stendur að verkefninu ásamt Margréti Bjarnadóttur. Fatahönnuðirnir Edda Guðmundsdóttir og Arna Sigrún Haraldsdóttir eru þær fyrstu til að hanna undir merkjum Black og frumsýndu þær hönnun sína í kjölfar tískusýningar annars árs nema við fatahönnun í LHÍ. „Þessi lína var forlína og hún er í raun ennþá í þróun. Einhverjar flíkur gætu farið í framleiðslu en það á eftir að koma betur í ljós. Það eru erfiðir tímar í fatahönnun eins og í mörgu öðru og verkefnið sjálft er svo nýtt að það er í raun ennþá verið að leggja línurnar að því. Við erum þó báðar byrjaðar að hanna nýja línu undir merkjum Black,“ útskýrir Edda. Hún segist þó taka að sér að sérsauma flíkur úr línunni fyrir áhugasama tískuunnendur og segir það hjálpa til við að fjármagna næstu fatalínu. Edda hefur ekki setið auðum höndum undanfarið því ásamt því að hanna undir merkjum Black hefur hún unnið að eigin línu auk þess sem hún og systir hennar, Sólveig Ragna Guðmundsdóttir arkitekt, hanna saman undir nafninu Shadow Creatures. Aðspurð segir Edda ekki flókið að hanna svo margar fatalínur í einu. „Nei, það er ekkert erfitt að fá hugmyndir að öllum þessum línum. Ég hef skipt þessu niður í tímabil og einbeiti mér bara að einu verkefni í einu. Línan sem ég hanna með systur minni verður aðeins sumarlegri og glaðlegri en hinar og ég býst við að hún verði fáanleg í júní.“ Hægt er að skoða Black-línurnar á Facebook-síðum Eddu og Örnu Sigrúnar. sara@frettabladid.is
Mest lesið „Sat í átta klukkutíma á dag og horfði út um gluggann“ Menning Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru Menning Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Lífið Bestu, stærstu, slökustu og verstu myndir ársins 2025 Bíó og sjónvarp Frægir fundu ástina 2025 Lífið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Menning Íslenska stelpan sem gerðist mormóni Lífið Fleiri fréttir Leitin á Svínafellsjökli sem hefur enn ekki skilað árangri Krakkatía vikunnar: Ísskápastríð, Eivör og Grafarvogur „Við byrjuðum að hlusta á jólalög í júlí“ Frægir fundu ástina 2025 Íslenska stelpan sem gerðist mormóni „Við erum öll dauð hvort sem er“ Fréttatía vikunnar: Rob Reiner, Dóra Björt og fullir unglingar 500 Esjuferðir á árinu: „Sumir hrista bara hausinn og lygna augunum“ Útgefandi Walliams lætur hann róa Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sjá meira