Lífið

Conan með grínsýningu

conan o´brien
conan o´brien
Spjallþáttastjórnandinn fyrrverandi Conan O"Brien ætlar að ferðast um Norður-Ameríku með nýja grínsýningu þar sem uppistand og tónlistaratriði verða á dagskránni.

Með í för verður aðstoðarmaður Conans, Andy Richter, og húshljómsveitin hans fyrrverandi út Tonight Show-þáttunum. Sýningin heitir Bannað að vera fyndinn í sjónvarpi-ferðalagið og er tilvísun í þá staðreynd að hann má ekki koma fram í sjónvarpi fyrr en 1. september.

Var það liður í starfslokasamningi hans við NBC-sjónvarpsstöðina sem hljóðaði upp á 32,5 milljónir dollara, eða um fjóra milljarða króna.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.