Lífið

Ætlar að hlaða batteríin

Emma Watson. MYND/Cover Media
Emma Watson. MYND/Cover Media

Leikkonan Emma Watson, 20 ára, ætlar að hvíla sig frá leiklistinni um stundar sakir.

Emma, sem var aðeins tíu ára gömul þegar hún landaði hlutverki Hermione Granger í Harry Potter ævintýrinu, lét klippa á sig drengjakoll í von um að fá hlutverk* tölvuhakkarans Lisbeth Salander fyrir bandarísku útgáfuna af Karlar sem hata konur eftir Stieg Larsson. en það gekk ekki eftir.

„Núna þarfnast ég tíma til að öðlast sjálfstraustið á ný og þá er ég ekki að tala um að gera það í gegnum leiklistina. Ég þarf að hlaða batteríin og vera ég sjálf í einhvern tíma," sagði Emma.

* Leikkonan Rooney Mara landaði hlutverkinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.