Lífið

Íris Hólm: Lagið hans Bubba fast í höfðinu á mér

„Erla Fanney á fáránlegt lof skilið fyrir frábæran kjól. Hún saumaði og sá um lokaútkomuna en hönnun sáu þau Sigrún Ragna frænka og Haffi Haff um," segir Íris Hólm.
„Erla Fanney á fáránlegt lof skilið fyrir frábæran kjól. Hún saumaði og sá um lokaútkomuna en hönnun sáu þau Sigrún Ragna frænka og Haffi Haff um," segir Íris Hólm.
Hvernig ertu stemmd eftir söngvakeppnina? „Ég er bara nokkuð góð. Þetta var pínu spennufall en ég er bara rosalega sátt við kvöldið. Þetta var mega gaman," svarar Íris Hólm söngkona sem söng lagið The One í úrslitum Söngvakeppni Sjónvarpsins á laugardaginn var.

Ertu sátt við úrslitin? „Já ég verð að viðurkenna að þau komu mér ekki á óvart. Hera er með hörkurödd og á eftir að standa sig með stakri prýði úti. Ég er mjög spennt að fylgjast með."

„Ég er með lagið (hans Bubba) fast í höfðinu á mér og finnst alveg magnað hvað það vinnur á."

Kom eitthvað þér á óvart í keppninni? „Já upphækkunin í laginu hjá Bubba og Óskari Páli. En jesús hvað hún var alveg málið! Ég er með lagið fast í höfðinu á mér og finnst alveg magnað hvað það vinnur á," segir Íris.



Þú leist rosalega vel út á laugardaginn. Hvað er leyndarmálið á bak við það?
„Takk fyrir það. Ég var með hóp af fagfólki sem hjálpaði mér að vera algjörlega gordjöss. Katla Einars farðaði mig og Elis Veigar sá um hárið á mér."

„Auk þess á Erla Fanney fáránlegt lof skilið fyrir frábæran kjól. Hún saumaði og sá um lokaútkomuna en hönnun sáu þau Sigrún Ragna frænka og Haffi Haff um. Ég var búin að vera í algjörri megadívumeðferð á Greifynjunni fyrir kvöldið og leið rosalega vel eftir það."

„Núna einbeiti ég mér að því að syngja með Bermuda. Við erum alltaf að spila á Broadway á eftir MJ sýningunum og á opnum böllum. Svo erum við að vinna að okkar eigin efni," segir 'Íris og bætir við:

„Auk þess fer mest allur minn tími í stofnun á samtökum fyrir þunglynda. Finnst það vanta og nýti alla mína orku í það."-elly@365.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.