Carmina með tónleika í Landakoti um helgina 12. maí 2010 07:00 Kammerkórinn Carmina er með þéttskipaða dagskrá og gefur brátt út nýjan disk með íslenskri tónlist úr Hymnodíu-handritinu.
Kammerkórinn Carmina leggur nú lokahönd á efnisskrá sem hann flytur í Kristskirkju í Landakoti um helgina. Kórinn setti Árni Heimir Ingólfsson á stofn og hefur Carmina uppskorið mikið hrós hjá vönduðum erlendum tónlistartímaritum fyrir flutning sinn á tónlist fyrri alda en á því sviði starfar kórinn fyrst og fremst. Þannig voru menn á breska tónlistarblaðinu Gramophone yfir sig hrifnir af geisladisk kórsins, Melódíu. Kammerkórinn Carmina var stofnaður árið 2004 og er eini tónlistarhópur sinnar tegundar á Íslandi sem sérhæfir sig í flutningi á tónlist endurreisnartímans. Meðlimir hópsins koma víða að, eru ýmist búsettir á Íslandi, í Lundúnum eða Kaupmannahöfn. Allir eru þeir með söngmenntun að baki og starfa bæði sjálfstætt sem tónlistarmenn og með öðrum kórum. Á undanförnum árum hefur Carmina einbeitt sér að því að flytja og hljóðrita tónlist úr íslenskum nótnahandritum sem lengi höfðu legið í þagnargildi, en auk þess hefur hópurinn frumflutt á Íslandi fjölda meistaraverka frá 15. og 16. öld. Á efnisskránni í Kristskirkju er til að mynda að finna þrjú tónverk sem ekki hafa heyrst áður hér á landi. Árni segir kórinn hafa það hlutverk í tónlistarlífi landsins að syngja tónlist sem annars ratar sjaldan á tónleikaprógrömm: „Ef litið er yfir tónlistarsviðið má segja að tónlistarsagan byrji með Bach í kringum aldamótin 1700 og nái til dagsins í dag, sem gerir um þrjú hundruð ár. Okkar áhersla spannar ríflega tvær aldir þarna á undan, og við reynum markvisst að láta okkar efnisskrár ekki skarast við það sem aðrir hérlendir kórar og sönghópar fást við. Við teljum einfaldlega mikilvægt að Íslendingar fái tækifæri til að upplifa þá ómótstæðilegu töfra sem tónlist endurreisnartímans býr yfir. Þetta er eitt af gullaldarskeiðum listasögunnar og það gildir jafnt um tónlistina eins og aðrar listgreinar." Á tónleikunum í Kristskirkju á laugardag og sunnudag eru nokkrar helstu perlur endurreisnartónlistarinnar og eiga verkin það flest sameiginlegt að vera samin Maríu guðsmóður til dýrðar. Meðal þeirra má nefna hið víðfræga Ave Maria eftir Josquin des Prez, sem hefur verið kallað „Mona Lisa endurreisnartónlistarinnar". Einnig eru á efnisskránni Maríusöngvar eftir Morales, Victoria og Dunstable, auk tveggja söngva úr íslenskum handritum frá 16. og 17. öld. Þá verða flutt tvö magnþrungin verk við Harmljóð Jeremía, eftir Thomas Tallis og Orlando di Lasso, þar sem leikið er á margvíslega strengi tilfinninganna. Það er fjölmargt spennandi á döfinni hjá Carminu og ljóst að hróður hópsins hefur borist víða. Fyrir utan tónleikana á Listahátíð mun kórinn koma fram á tónlistarhátíðinni Við Djúpið á Ísafirði í júní, og á hátíðinni Wege Durch das Land í Þýskalandi í júlí. Þar syngur Carmina í hinu sögufræga Dalheim-klaustri í Lichtenau, þar sem Nikulás Bergþórsson ábóti á Munkaþverá gisti á leið sinni til Rómar um miðja 12. öld. Einnig er væntanlegur á markað nýr hljómdiskur þar sem Carmina flytur lög úr íslenska handritinu Hymnodia sacra, sem ritað var árið 1742. Stjórnandi á tónleikunum í Kristskirkju er Árni Heimir en þeir eru kl. 16 báða dagana og er miðasala á midi.is og í miðasölu Listahátíðar á Bernhöftstorfunni. - pbb
Mest lesið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Mikil eftirspurn eftir miðum á Eclipse Festival - „Augnablik sem aldrei gleymist“ Lífið samstarf Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Í festival gír með Icewear Lífið samstarf Bylgjulestin brunar á Flúðir Lífið samstarf Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Lífið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Fleiri fréttir Diddy í einangrun eftir slagsmál við samfanga Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Sjá meira