Lífið

Hætt að drekka og dópa

Naomi Campbell. MYND/Cover Media
Naomi Campbell. MYND/Cover Media

Ofurfyrirsætan Naomi Campbell, 40 ára, er edrú í dag. Hún sér ekki eftir villtu líferni fortíðar og horfir björtum augum fram á við.

„Það er alls engin eftirsjá af minni hálfu. Ég skemmti mér stórkostlega en núna er partíið búið því líf mitt hefur tekið stakkaskiptum," sagði Naomi.

Naomi er á föstu með rússneska viðskiptajöfrinum Vladislav Doronin sem hún er mjög ástfangin af. Sagan segir að brúðkaup sé í vændum en Naomi kýs að halda því út af fyrir sig. Burtséð frá því vill hún eignast börn.

„Þegar guð ákveður að það er rétt fyrir mig að eignast börn gerist það. Ég er óvirkur alki og eiturlyfjaneytandi en er hætt í neyslu. Ég lifi fyrir einn dag í einu og kýs að hlutirnir gerist á náttúrulegan máta," sagði hún.

Naomi nýtur þess að búa í Moskvu með skrilljónamæringnum, ástinni sinni Vladislav.

Vertu með okkur á Facebook. Sjá hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.