Bretar falla fyrir Þorsteini 5. október 2010 08:00 Þorsteinn Gunnarsson fær frábæra dóma fyrir frammistöðu sína í hlutverki Jóhanns í Faust en sýningin sjálf fær misjafnar viðtökur hjá breskum gagnrýnendnum. Fréttablaðið/Anton
Breskir gagnrýnendur virðast ekki hafa fallið í stafi yfir uppfærslu Vesturports á Faust en enska útgáfan af þessari sýningu leikhópsins og Borgarleikhússins var frumsýnd á föstudag. Gagnrýnandi This is London, Henry Hitchings, gefur sýningunni raunar bara tvær stjörnur og segir Faust ekki gera neitt fyrir fólk sem hafi áhuga á ljóðagerð og skrifum Goethes. „Þar sem yfirlýst markmið Vesturports er að gera verk Goethes aðgengilegra fleirum þá er ekki mikið í henni fyrir aðdáendur þýska skáldsins,“ skrifar Hitchings Charles Spencer hjá Telegraph tekur í svipaðan streng en báðir gagnrýnendur eru ákaflega hrifnir af frammistöðu Þorsteins Gunnarssonar í aðalhlutverkinu, þeir sem hafi gaman af hefðbundnum klassískum uppfærslum skuli hins vegar forðast Faust. „Og jafnvel þeir, sem kunna vel við villtari hliðar leikhússins, eiga eftir að verða fyrir ákveðnum vonbrigðum með þessa tilraun,“ skrifar Spencer og gefur Faust þrjár stjörnur. Michael Billington hjá Guardian gefur sýningunni einnig þrjár stjörnur. Billington segir flest leikhúsfólk þekkja til Vesturports enda hafi sýningar á borð við Rómeo & Júlíu og Hamskiptin verið í heimsklassa. „En þessi sýning skýtur aðeins yfir markið,“ skrifar Billington. Hann er hins vegar yfir sig hrifinn af Þorsteini Gunnarssyni, Birni Hlyni Haraldssyni og Unni Ösp Stefánsdóttur. Kate Basset hjá Independent er hins vegar mun hrifnari, hún segist hafa orðið innblásin af hugmyndum Vesturports um Faust og hrósar hinni skapandi óreglu sem ríkir uppi á sviði.- fgg
Mest lesið „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Lífið Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Lífið Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Lífið Best klæddu Íslendingarnir 2025 Tíska og hönnun Flýta jólasýningunni um klukkutíma vegna lengdar Menning Úr öskunni í eldinn Gagnrýni Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Lífið Laufey á lista Obama Lífið Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Lífið Pete orðinn pabbi Lífið Fleiri fréttir Fáklæddir barþjónar þegar Regnboginn opnaði í Bíó Paradís Þriðja stigs krabbameinið það besta sem kom fyrir hann Dúnninn bakaður í fjóra sólarhringa til að drepa allt í honum Heilsu krónprinsessunnar hrakar gríðarlega Pete orðinn pabbi Nýkominn úr meðferð og „sjaldan verið betur nýsleginn túskildingur“ Laufey á lista Obama „Ég heyrði þá kalla á mig en gat engu svarað“ Opnar sig í fyrsta sinn: Kyssti yfirmanninn í fyrsta sinn þetta kvöld Sex hundruð ára kastali Björns í Frakklandi svo gott sem klár Fyrirsát að Valgerði, Stund Pírata og meint alzheimer Þráins Bertelssonar „Það jafnar sig enginn eftir svona og við munum aldrei gera það“ Ungir sjálfstæðismenn gefa út vandræðalegt fjölskyldudagatal Keough sögð líffræðileg móðir Benjamin Travolta Rússland aftur í Eurovision - undirskriftasöfnun Óskarsverðlaununum streymt á Youtube Karmað muni bíta þjófinn í rassinn þegar títan og glyttan byrja að dansa í hitanum Hreimur og Ólafur Darri perluvinir sem horfa á enska boltann saman „Ég er mamman sem gat aldrei gefið honum það sem hann óskaði sér“ Áttu að hitta Reiner-hjónin daginn örlagaríka Leynigesturinn hitti Heimi Karls beint í hjartastað Sannkölluð útsýnisperla með potti í Skerjafirði Kristófer Acox og Guðrún Elísabet eiga von á barni Reynihvammur 39 jólahús Kópavogsbæjar Þingmaður selur húsið Segja Helenu fara með „hreinar rangfærslur“ Skrifaði eftirréttasöguna: „Er hann geðbilaður?“ Palestínskir fánar leyfðir og óánægjuhróp áhorfenda ekki falin Féllu örmagna til jarðar eftir langa þriðju vakt „Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Sjá meira