Gói verður bara á skjánum til áramóta 5. október 2010 07:00 Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV, segir að Hringekja Góa eigi eftir að slípast til og mýkjast. Hann verður hins vegar bara á dagskrá til áramóta. „
Eftir áramót kemur söngvakeppnin, það var alltaf meiningin að halda þessum þætti til áramóta og svo tæki söngvakeppnin við,“ segir Sigrún Stefánsdóttir, dagskrárstjóri RÚV. Hringekjan, skemmtiþáttur Guðjóns Davíðs Karlssonar, fór í loftið á laugardaginn. Guðjón upplýsti þar að síðasti þátturinn yrði í desember. Sigrún vill ekki meina að þetta sé enn eitt dæmið um niðurskurð hjá RÚV en hingað til hefur verið rými fyrir bæði Spaugstofuna og Söngvakeppni Sjónvarpsins. „Þetta er klukkutími en Spaugstofan var hálftími, Það er bara þess vegna sem þetta er gert. Hins vegar, ef þessi þáttur gengur vel þá gætum við sett hann, hægt og bítandi, í nýtt form. En eins og staðan er í dag þá verður hann fram í desember.“ Fyrsti þátturinn var helgaður Vestmannaeyjum en fékk vægast sagt harðar viðtökur ef marka má samskiptasíðuna Facebook. Illugi Jökulsson rithöfundur skrifaði til að mynda: „Það sem það þætti hallærislegt ef Reykvíkingar leyfðu sér svona hreppagrobb og bæjarbelging, eins og þátturinn Hringekjan virðist eiga að ganga út á!“ Þetta virðist þó ekki hafa bitið á þá 31 sem gerðust aðdáendur Facebook-síðu þáttarins. „Þetta var fyrsti þátturinn og hann á eftir að slípast til og mýkjast. Ég trúi því að hann eigi eftir að verða nokkuð góður,“ segir Sigrún. Söngvakeppni Sjónvarpsins verður að sögn Sigrúnar af svipaðri stærðargráðu og hefur verið undanfarin ár. Ekki hefur verið gengið frá því hverjir verða kynnar en eins og Fréttablaðið hefur greint frá eru þær Eva María Jónsdóttir og Ragnhildur Steinunn báðar í fæðingarorlofi.- fgg
Mest lesið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Lífið Britney farin í meðferð Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Lífið Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Lífið Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Lífið Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Tónlist Fleiri fréttir Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Sjá meira