Lífið

Ófáanlegar gersemar

Hljómsveitin Melchior verður dugleg við tónleikahald í nóvember.
Hljómsveitin Melchior verður dugleg við tónleikahald í nóvember.
„Okkur finnst þetta vera ófáanlegar gersemar sem eru að koma út. Við teljum þetta vera poppsögulegt innlegg," segir Karl Roth úr hljómsveitinni Melchior sem gaf fyrir skömmu út tvöföldu plötuna <1980.

Um er að ræða endurútgáfu á vínilplötunum Silfurgrænu ilmvatni og Balapoppi en öll lög þeirra platna voru tekin upp fyrir árið 1980. Á Silfurgrænu ilmvatni er að finna elsta lagið sem Melchior hefur tekið upp, The Funny Thinking Man, sem Helga Möller söng árið 1974.

Melchior er nýbyrjuð að spila aftur eftir að hafa tekið því rólega á þessu ári. „Við erum komnir aftur af stað núna og ætlum að keyra svolítið fram að jólum. Þetta verður alltaf skemmtilegra og skemmtilegra," segir Karl. Melchior mun spila töluvert á Rosenberg í nóvember en útgáfutónleikar hennar voru haldnir þar fyrir skömmu. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.