Frímann skiptir um stöð 22. apríl 2010 03:30 Frímann Gunnnarsson og könnun hans á skandinavískum húmor verður á Stöð 2 í stað RÚV. Hér er Frímann ásamt Frank Hvam, Klovn-stjörnunni frægu.
Frímann Gunnarsson og ferðalag hans um húmorinn á Norðurlöndunum og Bretlandi verður á Stöð 2 í stað RÚV. Þetta staðfestir skapari Frímanns, Gunnar Hansson. Eins og Fréttablaðið greindi frá stóð fyrst til að þættirnir yrðu á RÚV en að sögn Gunnars skildi leiðir vegna fjármögnunar verkefnisins. „Við vorum bara kallaðir á fund upp í Efstaleiti og sagt að þetta gengi ekki upp. Frímann hefði sagt að sá fundur hefði verið eins og blaut tuska í andlitið,“ útskýrir Gunnar og vill sem minnst tjá sig um sambandsslitin. Þau hafi þó komið á slæmum tíma fyrir framleiðsluna enda voru þeir komnir á fullt í tökum. „En þetta er svo skemmtilegur bolti þessi bransi og við erum ákaflega fegnir að Stöð 2 skyldi grípa hann á lofti,“ segir leikarinn en hann gerir þættina ásamt bróður sínum, Ragnari Hanssyni. Gunnar kveðst vera ákaflega sáttur með vistaskiptin, hann hafi skynjað það á fyrstu fundum sínum með forsvarsmönnum stöðvarinnar að þeir væru að tala sama tungumál. Þættirnir verða að öllum líkindum á dagskrá Stöðvar 2 strax í haust en Gunnar og Ragnar eru á leiðinni til London til að taka upp þátt með breska uppistandaranum Matt Berry. Bretinn er síður en svo eina stórstjarnan sem kemur fram í þáttunum því meðal viðmælenda eru Klovn-stjarnan Frank Hvam og Jón Gnarr auk fulltrúa frá hinum Norðurlöndunum. Danska ríkissjónvarpið, DR 2, hefur þegar keypt sýningarréttinn að þáttunum og Gunnar upplýsir að þeir séu í viðræðum við finnska sjónvarpsstöð. „Við ætlum að bíða með samningaviðræður við sænska sjónvarpið og það norska þar til við höfum meira myndefni til að sýna þeim.“- fgg
Mest lesið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Sjá meira