Skandall skekur H&M 23. desember 2010 08:30 Logið að viðskiptavinum? Sænski verslunarrisinn H&M eyðileggur og hendir fatnaði í stað þess að gefa til hjálparstofnana samkvæmt yfirlýstri stefnu fyrirtækisins.
Mikill styr stendur þessa dagana um eina af uppáhaldsbúðum Íslendinga, Hennes & Mauritz. Sænska dagblaðið Expressen sakar verslanakeðjuna um að ljúga að viðskiptavinum sínum. Málið snýst um fatnað sem stenst ekki gæðakröfur fyrirtækisins. Það hefur verið yfirlýst stefna H&M að flíkurnar séu gefnar til hjálparstofnana en Expressen segir að það sé rangt, fyrirtækið eyðileggi í raun fatnaðinn og hendi honum. Myndbrot sem sýnir starfsmann í einni af fjölmörgum búðum verslanakeðjunnar klippa og rífa fatnað á meðan hann afgreiðir viðskiptavin hefur gengið eins og eldur um sinu á netmiðlum. Myndbandið er tekið upp á síma og hafði sá sem tók það upp orð á því að starfsstúlkan klippti niður boli og buxur með æfðum handtökum og henti í svartan ruslapoka. Í kjölfarið tók Expressen viðtöl við tíu starfsmenn í búðum víðs vegar í Svíþjóð sem staðfesta að þeim sé sagt að ljúga að viðskiptavinum ef þeir séu spurðir út í þetta. „Við höfum aldrei heyrt um neinar gjafir til góðgerðarmála og klippum niður allt að tuttugu flíkur á dag sem koma inn með smávægilega galla,“ hefur blaðið eftir starfsmönnum verslanakeðjunnar. Hennes & Mauritz hefur ávallt gefið sig út fyrir að gefa fatnað til hjálparstofnana og þvertekur fyrir að farga fatnaði. Þetta er óneitanlega svartur blettur á annars tiltölulega flekklausri fortíð sænska verslunarrisans, sem hefur skapar sér fastan sess í hjörtum verslunarglaðra Íslendinga.- áp
Mest lesið Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Lífið Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir Lífið Ástardúett Stuðmanna í nýjum búning Tónlist Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Lífið „Fallegur fjölskyldusamruni“ Lífið 90% þeirra sem upplifa hárlos meðhöndla það ekki - það er þó hægt Lífið samstarf Öðruvísi líf: „Veistu Hrund, þú ert eiginlega eins og Forrest Gump“ Áskorun Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Lífið Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Tónlist 50+: Þegar börnin búa enn heima hátt í þrítugt Áskorun Fleiri fréttir Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ Sjá meira