Innlent

Túlkur íslensku sveitarinnar missti húsið

Eitt af fórnarlömbum jarðskjálftans á Haítí. Mynd/AP
Eitt af fórnarlömbum jarðskjálftans á Haítí. Mynd/AP

Haítíbúinn sem kemur til með að aðstoða og túlka fyrir íslensku rústabjörgunarsveitina sem er á leið til Haítí missti húsið sitt í jarðskjálftanum í gærkvöldi. Hann komst ásamt eiginkonu sinni og mánaðargömlu barni út úr húsinu en missti flestar eigur sínar. Þetta hefur Pétur Guðjónsson eftir honum en Pétur hefur dvalið langdvölum í landinu undanfarin 15 ár við hjálpar- og uppbyggingarstarf. Hann hefur í morgun ítrekað reynt að ná sambandi við íbúa sem hann þekkir á eyjunni og er túlkurinn sá eini sem Pétur hefur náð í.

Jarðskjálfti að stærðinni 7,1 á Richter reið yfir Haití klukkan tíu gærkvöldi að íslenskum tíma. Upptökin voru skammt frá höfuðborginni Port au Prince sem fór afar illa út úr skjálftanum.

„Ástandið var nóg erfitt fyrir þó þetta hafi ekki þurft að bætast við," segir Pétur sem lýsir hörmungunum við Móðuharðindin á Íslandi á 18. öld. Afar róstusamt hafir verið í landinu undanfarin ár og mannrán tíð. Haiti er auk þess eitt fátækasta land í Vesturheimi.

Össur vakti Pétur sem kom á sambandi við túlkinn

Vegna tengsla sinna við Haítí var samband við Pétur frá utanríkisráðuneytinu í nótt. „Össur utanríkisráðherra vakti mig en það er í góðu lagi," segir Pétur sem hafði milligöngu um að koma á samskiptum milli ráðuneytisins og Haítíbúans sem ætlar að túlka fyrir rústabjörgunarsveitina. Hann býr í höfuðborginni.

Pétur segist hafa reynt að ná í að minnsta kosti 15 Haítíbúa í morgun en túlkurinn hafi verið sá eini sem hann hafi náð sambandi við. „Það var hundaheppni því símasambandið er mjög slæmt." Pétur hefur eftir honum að íbúar höfuðborgarinnar telji að þúsundir jafnvel tugþúsundir manna hafi farist í skjálftanum og margir misst heimili sín.

Veit ekki hvort að skólarnir eru skemmdir

Pétur hefur á undanförnum árum starfað á vegum húmanistahreyfingarinnar á Haítí og segist hann hafa heimsótt landið mörgum sinnum á ári síðustu 15 ár. Pétur var síðast í landinu í lok september. Hann segir að hreyfingin á Íslandi hafi ásamt heimamönnum tekið þátt í að reisa hátt í 200 skóla sem eru flestir á landsbyggðinni. Pétur veit ekki hvort og þá hversu mikið skemmdir þeir eru.

Uppbyggingin hafi verið studd af Íslendingum og íslenskum fyrirtækjum en Pétur segir að ekki hafi farið mikið fyrir starfinu hér á landi þrátt fyrir það. „Þetta hefur bara verið stutt af Íslendingum og það má því segja Íslendingum komi Haítí ansi mikið við."


Tengdar fréttir

Rústabjörgunarsveitin farin af stað

Íslenska alþjóðabjörgunarsveitin sem er sérhæfð í rústabjörgun er lögð af stað til Haití til björgunarstarfa. Flugvél frá Icelandair fór í loftið frá Keflavíkurflugvelli um klukkan 11 með 35 meðlimi sveitarinnar og fulltrúa frá utanríkisráðuneytinu sem mun fylgja sveitinni til Haití.

Rústabjörgunarsveitin á leið í loftið

„Við erum í lokahnykknum. Allur farangur er kominn um borð og nú bíðum við eftir að fá leyfi til að fara í loftið," segir Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. 36 manna björgunarsveit er á leið skjálftasvæðið í Haítí. Auk þess fara Kristinn og starfsmaður utanríkisráðuneytisins með hópnum en þeir koma væntanlega til baka á morgun.

Rauði krossinn með símasöfnun vegna hamfaranna í Haítí

„Reynslan sýnir að fyrstu aðgerðir Rauða krossins í jarðskjálftum sem þessum eru að veita fólki skjól, mat og hreint vatn, auk læknisaðstoðar og sálræns stuðnings,” segir Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, sem hefur opnað söfnunarsíma sinn vegna jarðskjálftans á Haítí í gærkvöldi. Rauði krossinn hér á landi hefur boðið fram vana sendifulltrúa í neyðarviðbrögðum.

Íslendingur í Haítí

Utanríkisráðuneytinu er kunnugt um einn Íslending í Haítí. Hann er óhultur og gat látið vita af sér skömmu eftir stóra jarðskjálftann í gærkvöldi.

Björgunarsveitin frá Íslandi fer fyrir hádegi

Í kjölfar jarðskjálftans mikla í Haítí ákvað utanríkisráðuneytið, í samvinnu við Slysavarnafélagið Landsbjörgu að bjóða fram aðstoð íslensku alþjóðabjörgunarsveitarinnar, sem er sérhæfð í rústabjörgun.

Ekki vitað um Íslendinga í Haítí

Ekki hafa borist fregnir af því að Íslendingur hafi verið á sjálftasvæðinu í Haítí. Þetta segir Urður Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×