Lífið

Handboltinn er þjóðaríþróttin

Þorsteinn Joð stjórnar HM-stofu fyrir HM í handbolta sem fram fer í Svíþjóð. Fréttablaðið/Stefán
Þorsteinn Joð stjórnar HM-stofu fyrir HM í handbolta sem fram fer í Svíþjóð. Fréttablaðið/Stefán
Þorsteinn Joð Vilhjálmsson skiptir yfir í handboltann. Hann verður ekki í vandræðum með að finna álitsgjafa enda næstum annar hver maður verið atvinnumaður í íþróttinni.

„Við erum neðarlega á öllum listum í heiminum nema í handbolta. Þar erum við meðal þeirra bestu,“ segir Þorsteinn J. Vilhjálmsson. Hann mun stýra HM-stofu fyrir heimsmeistaramótið í handbolta sem fram fer í janúar á næsta ári í Svíþjóð en keppnin verður að þessu sinni á Stöð 2 Sport, ekki RÚV eins og öll önnur stórmót íslenska landsliðsins í handbolta. Þorsteinn og félagar munu hita upp fyrir keppnina í byrjun desember þegar sýnt verður beint frá nokkurs konar Norðurlandamóti en alvaran hefst svo þann 14. janúar þegar Ísland mætir Ungverjalandi í Norrköping.

Þorsteinn viðurkennir að það sé vissulega himinn og haf milli vinsælda fótboltans og handboltans á heimsvísu. „En þetta er þjóðaríþróttin okkar, ef það er eitthvað sem sameinar þjóðina um eitt málefni þá er það handboltinn. Þetta er því stór íþrótt í huga Íslendinga,“ segir Þorsteinn. Að sögn Þorsteins verður HM-stofan með svipuðum hætti og fyrir stórmótin í fótbolta, sérfræðingar munu mæta til leiks og kryfja leikina og Þorsteinn ætti ekki að vera í neinum vandræðum með að finna gamlar kempur sem þekkja leikinn út og inn.

Hins vegar vaknar óneitanlega upp gamall kvíðadraugur þegar ljóst er að tjalda á öllu til og gera „strákunum okkar“ hátt undir höfði. Því þegar væntingarnar hafa verið miklar og Íslendingar hafa ætlað að sigra heiminn í parketlögðum íþróttahöllum hefur niðurstaðan oftar en ekki valdið vonbrigðum. „Ég er ekkert mikið að hugsa um það. Og ég held að það skipti engu máli hvort væntingarnar séu miklar eða litlar, það er dauður maður sem hefur ekki gaman af því að horfa á HM í handbolta í janúar.“

freyrgigja@frettabladid.is





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.