Clash of the Titans er stórmynd af bestu gerð 8. apríl 2010 10:00 Því er spáð að Sam Worthington verði næsta hasarmyndastjarna í líkingu við Bruce Willis ef Clash of the Titans gengur vel í bíó.
Því er spáð af mörgum fjölmiðlum að stórmyndin Clash of the Titans verði einn af smellum ársins 2010 þótt hugtakið „smellur" hafi fengið nýja merkingu eftir Avatar-ævintýrið ógurlega. Myndin er stórmynd af bestu gerð enda má ekki minna vera þegar hinir breysku grísku guðir eru annars vegar. Reyndar er ein skemmtileg Avatar-tenging því aðalleikari myndarinnar, Sam Worthington, lék einmitt líka í þrívíddarveislu James Cameron. Clash of the Titans er endurgerð samnefndrar myndar frá árinu 1981 en tæknibrelluheimurinn hefur eilítið breyst síðan þá. Myndin fjallar um Perseif sem er sonur guðanna. Því er hins vegar haldið leyndu fyrir honum þótt drengurinn komist fljótt að leyndarmálinu þegar fjölskyldu hans er rænt af undirheimaguðinum Hadesi. Perseus leggur því af stað ásamt vösku liði kappa til þess að skora Hades á hólm í mögnuðum bardaga þar sem fjölbreyttar tegundir skrímsla koma töluvert við sögu. Til gamans má geta þess að íslenska fyrirtækið Framestore vann að tæknibrellum fyrir myndina sem er að sjálfsögðu í þrívídd. Hollywood-maskínan bindur miklar vonir við Sam Worthington og ef Clash of the Titans fer vel í áhorfendur gæti hann hugsanlega orðið næsta hasarmyndastjarna kvikmyndaborgarinnar. Worthington er vel studdur af gæðaleikurum á borð við Liam Neeson og Ralph Fiennes en leikstjóri myndarinnar er Louis Leterrier.
Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Lífið „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Fleiri fréttir „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Guðmundur og Erna eru gift Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Sjá meira