Kjörstjórn taldi prófkjörsslag hóflegan 29. apríl 2010 04:00 Sigurður Ásbjörnsson
Kjörstjórn Samfylkingar í Reykjavík taldi ekki að frambjóðendur hefðu verið óhóflegir í prófkjörsbaráttunni árið 2006, í prófkjöri fyrir alþingiskosningar 2007. Prófkjörsreglur hefðu ekki verið brotnar. Þetta segir Sigurður Ásbjörnsson, þáverandi formaður kjörstjórnar. „Það sem fólki blöskraði hins vegar var prófkjörið fyrir borgarstjórnarkosningar fyrr um árið. Því var þess krafist að dregið skyldi úr kostnaði og allar okkar aðgerðir miðuðu að því. Kostnaður flokksins í seinna prófkjörinu var um fjörutíu prósent af kostnaðinum við hitt,“ segir hann. Á þriðjudag var greint frá því í blaðinu að stjórn fulltrúaráðs flokksins hefði lagt til að hámarkskostnaður frambjóðenda við alþingisprófkjör yrði ein milljón króna. Horfið var frá þessu og látið nægja að ætlast væri til að frambjóðendur sýndu háttvísi og stilltu kostnaði í hóf. „Þetta er hið vandræðalega orðalag, sem ekki er klappað í stein: hvað er hóf?“ segir Sigurður. Engin íhlutunar- eða refsiákvæði voru í reglunum. Sigurður segir að kjörstjórn hafi fylgst með því meðan á baráttunni stóð að ekki væri auglýst í sjónvarpi eða farið í „fáránlegar flugeldasýningar“ eins og í fyrra prófkjörinu. Frambjóðendum hafi síðan verið gert að skila yfirliti um tekjur og kostnað. Kjörstjórn fór ekki yfir það yfirlit heldur skilaði því til Samfylkingarfélagsins í Reykjavík. Frambjóðendur í þessu prófkjöri, sem enn sitja á Alþingi, eyddu frá 530.000 krónum og upp í 5,6 milljónir króna.- kóþ
Mest lesið Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Innlent Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Innlent Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Erlent „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Innlent Slökktu eld á Kársnesi Innlent Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Innlent Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Innlent Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða Innlent Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Erlent Fleiri fréttir Fengu virkjunarleyfi í Strandabyggð Ekki rétt að börn þurfi að bera gleraugun allan tímann Andstæðingar afvegaleiði kjósendur með „kjaftæði“ Farþegar muni ekki þurfa að taka allt úr töskunum í Keflavík Skattgreiðendur eigi fullan rétt á svörum Belgíski flugherinn sinnir gæslu á Íslandi Stöðvaður tvö kvöld í röð Telja mikilvægt að fyrir liggi hvað felst í framsali yfirráða „Evrópusambandið er ekki konfektkassi“ Slökktu eld á Kársnesi Þjófar herja á fyrirtæki borgarinnar Metsumar hjá Landhelgisgæslunni: Þörf á að tvöfalda flotann Tíu sakborningar og minnst þrír brotaþolar í fjárkúgunarmáli Viðarplata eina útsýnið og hávaði frá morgni til kvölds Lokanir á Arnarnesvegi og við Sundagarða Varað við vindhviðum á Vestfjörðum Orð Jóns Sigurðssonar eigi við um baráttuna í dag Áhættumat byggir ekki lengur bara á vísindalegu mati Tíu sakborningar í fjárkúgunarmáli og íbúar ósáttir í Hamraborg „Það bara fannst ekki neitt“ Óttast valdaframsal til Evrópusambandsins Gísli Rafn vill leiða stofnun atvinnuveganna Svandís segir nei Héraðssaksóknari með meint kynferðisbrot leikskólastarfsmanns á sínu borði Komin með skýra mynd á fjölskylduharmleik í Kópavogi Yfirfullir fangaklefar til trafala í innbrotahrinunni Bændur kynna ESB skýrslu og fullir fangaklefar Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Fjölskyldan með á þriðja kíló af kókaíni Íslendingur í Danmörku fékk ekki að vera á kjörskrá Sjá meira