Þjóðin velur Mottumeistara Krabbameinsfélagsins árið 2010 26. mars 2010 14:16
Söfnunarátakinu Karlmenn og krabbamein - Mottu-mars lýkur í kvöld með söfnunarþætti í beinni og opinni dagskrá á Stöð 2. Yfir 2.400 manns og 500 lið skráðu sig til leiks á karlmennogkrabbamein.is. Arion banki vann liðakeppnina. Efstu 5 motturnar í einstaklingskeppninni berjast til úrslita í beinni útsendingu. Örar sviptingar hafa verið í toppsætunum á vef Mottumars en sigurlið Arion banka skaust upp fyrir lið Actavis ONE á bókstaflega síðustu mínútu þegar lokað var fyrir áheit kl. 14:00 í gær. Safnast hafa yfir 26 milljónir króna til stuðnins átakinu en söfnunarféð verður notað til styrktar rannsóknar- og forvarnarstarfi Krabbameinsfélagsins. Mottumeistari Krabbameinsfélagsins árið 2010 verður valinn í símakosningu Það er svo íslenska þjóðin sem velur Mottumeistara Krabbameinsfélagsins árið 2010 með símakosningu í söfnunarþætti á Stöð 2 í kvöld. Fólk kýs þannig sína eftirlætis „mottu" úr hópi hinna fimm efstu úr einstaklingskeppninni, en margir kannast við slíkt fyrirkomulag úr keppnum á borð við Idol keppnina. Efstu keppendurnir eru: • Rúnar Sigurðsson • Sveinn Magni Jensson • Hinrik Greipsson • Hilmar Harðarson • Guðlaugur V. Antonsson Margir af helstu skemmtikröftum landsins koma við sögu í þættinum en hann verður í beinni útsendingu og opinni dagskrá - svo þjóðin öll geti fylgst með og tekið þátt í lokaátakinu. Meðal skemmtikrafta sem koma fram má nefna Hjálma, Baggalút, Jón Gnarr, Pétur Jóhann, Þorstein Guðmundsson, Karlakórinn Fóstbræður, Nýja dönsk, Sálina hans Jóns míns, Egil Ólafsson og Gunnar „Frímann" Hansson auk grínatriða eftir þá „-vaktarhöfunda" Sigurjón Kjartansson og Jóhann Ævar Grímsson. Þetta er einungis toppurinn á ísjakanum en í þættinum verður fjöldinn allur af athyglisverðum viðtölum, kraftakeppnum ásamt bílahorni og mörgu öðru. Þátturinn verður undir stjórn Loga Bergmann, en Vilhelm „Naglbítur" Anton Jónsson stendur vaktina í símaverinu.
Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi Lífið samstarf Fleiri fréttir Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Ocasio-Cortez á lausu Frægustu mágar landsins Office-stjarna með ólæknandi krabbamein Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Usher þvertekur fyrir klónið „Það er engin skömm í krabbameininu“ Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Sjá meira