Ekkert gullát á afmælinu 19. apríl 2010 08:00 Jón Páll bauð sínum nánustu upp á fiskisúpu í gær því afmælisdagurinn sjálfur er undirlagður af æfingum Íslandsklukkunnar. Fréttablaðið/Vilhelm „
Það er alveg ljóst að þessi tímamót verða ekki umflúin, það er ekki hægt að slá þessu á frest með því að fara í tímabundið leyfi frá þessu – ég tek þessu fagnandi,“ segir Jón Páll Eyjólfsson, leikstjóri og leikari, sem í dag, 19. apríl, á fertugsafmæli. Jón Páll hefur haft í nægu að snúast á árinu sem er að líða og mun á afmælisdaginn æfa Íslandsklukkuna sem Þjóðleikhúsið frumsýnir næstkomandi fimmtudag. Jón Páll leikur dómkirkjuprestinn og vonbiðil Snæfríðar Íslandssólar, séra Sigurð Sveinsson. „Maður heldur fertugsafmælið á stórmerkilegum tímum, þegar rannsóknarskýrslan, sem ég held að geti verið einhvers konar grunnur að nýjum sáttmála fyrir nýtt lýðveldi, kemur út,“ segir Jón Páll en þjóðmálin eru honum hugleiknari þessa dagana en fertugsafmælið sjálft. „Þessi skýrsla gerir það skjalfest, það sem sum okkar hafa haft á tilfinningunni, að persónur stjórnmálamanna og viðskiptamanna hafa orðið stærri en kerfið sjálft og sýnir að brotavilji þeirra var einlægur. Svo er svo merkilegt að þjóðin sem úthúðar útrásarvíkingum fyrir að hafa sýnt hömluleysi, æða áfram í blindni og hugsa ekki um öryggi annarra, er sama þjóðin og ryðst fram fyrir björgunarborðana við gosið,“ segir Jón Páll og bætir við að hann gæti hugsað sér að taka þetta efni fyrir. „Já, mig hefur langað svolítið að vinna ljósmyndaverkefni og glíma við viðbrögð okkar við gosunum. Maður er alltaf að reyna að finna einhvern annan miðil til að koma hugmyndum sínum á framfæri og það er ekki alltaf auðvelt að gera það í leikhúsinu. En varðandi gosið þá vonar maður að þjóðin geti séð það í því ljósi að það er góð og gild ástæða fyrir því af hverju við mannfólkið tókum höndum saman um að mynda samfélag – það er til að geta passað upp á hvert annað eins og við þessar aðstæður. Þannig að ef við finnum ekki til smæðar okkar núna gagnvart náttúruöflunum og förum ekki varlega, þá gerum við það aldrei.“ Jón Páll eldaði fiskisúpu fyrir sína nánustu í gær þar sem afmælisdagurinn sjálfur verður undirlagður af æfingum og segist hafa breytt heimili sínu í lítinn veislusal. „Þetta verður eitthvað lítið og nett. Ég ætla allavega ekki að fljúga á gosstöðvarnar með afmælisgesti og borða gullsnúða.“ juliam@frettabladid.is
Mest lesið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Lífið Fleiri fréttir Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Sjá meira