Nýtt og gott tímabil að hefjast í lífi Karls Gústavs 7. nóvember 2010 11:45 „Konungurinn er með góðleg augu“ Það kæmi Sigríði Klingenberg spámiðli ekki á óvart ef hjónaskilnaður myndi skekja sænsku konungsfjölskylduna á næstunni en hún spáði fyrir Svíakonungi síðast þegar hann var hér á landi við veiðar. „
Þessi stormur í kringum bókina er nýr og góður kafli í lífi konungsins. Það kæmi mér ekki á óvart ef Karl Gústaf verði laus og liðugur áður en langt um líður," segir Sigríður Klingenberg spámiðill. Allt fór á hvolf í Svíþjóð í vikunni þegar upplýst var um svall Karls Gústafs Svíakonungs og framhjáhöld í nýrri bók. „Silvía drottning er glæsileg kona en þau eru bara of ólík til að geta verið saman. Það er mín skoðun og ég held að þau séu bæði komin á ákveðinn vendipunkt í sínu lífi. Ég held að maður eigi samt að taka öllum þessum sögum sem koma fram í bókinni með fyrirvara," segir Sigríður Klingenberg enn fremur, en hún átti góðar stundir með Karli Gústaf þegar hann var staddur hér á landi í ágúst við veiðar með góðum hópi manna. Meðal annars spáði hún fyrir konungi og var með honum í einkateiti á skemmtistaðnum Austur. „Konungurinn er með mjög góðleg augu og það sá til dæmis aldrei á honum vín. Vinkona mín hringdi í mig í vikunni og sagði mér frá að ég hafði rétt fyrir mér, Svíakonungur er kominn inn á nýjan kafla í sínu lífi," segir Sigríður. Bókin sem um ræðir er ekki skrifuð með samþykki Karls Gústafs og lýsir honum sem partíljóni og kvennamanni miklum. Meðal annars eru frásagnir af kynlífspartíum þar sem konur voru beinlínis fluttar á milli til að halda konungi og vinum hans félagsskap. En koma þessar lýsingar af Karli Gústaf Svíakonungi Sigríði á óvart eftir að hafa eytt með honum dágóðum tíma? „Ég má ekki tjá mig mikið um þetta enda er það ekkert sérstaklega smart. Ég get sagt að hann var prúður prins á meðan hann var hér en hann var líka hress og skemmtilegur, með mikinn húmor," segir Sigríður og bætir við að hún hafi ekkert nema gott um konunginn að segja. Sigríður segir að hegðun Karls Gústafs á skemmtistaðnum Austur styðji ekki lýsingarnar af partílíferninu í bókinni. En mundi hún lýsa honum sem partíljóni? „Ja, annaðhvort ertu partíljón eða „partypooper". Í þeim skilningi var Karl Gústaf partíljón og hann sat með bros á vör og sama kampavínsglasið allan tímann. Það var fullt af konum þarna en hann var ekkert að gefa þeim neitt sérstakt auga. Í mesta lagi kyssti hann sumar á handarbakið enda mikill séntilmaður," segir Sigríður og bætir við að hún finni til með konunginum. „Það eru ekki auðvelt hlutskipti að þurfa að vera settlegur allt þitt líf og vera undir vökulum augum almennings allan sólarhringinn." alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira