Rómantík í kvöld 6. maí 2010 19:45 Jon Kimura Parker við æfingar í gær. Það er teygt milli æfinga hjá Sinfóníunni svo menn stirðni síður eftir átökin. Á myndinn má sjá þau Guðnýju Guðmundsdóttur konsertmeistara og Einar Jóhannesson með Joni.
Réttur mánuður er eftir af starfsári Sinfóníunnar en margt merkilegt er á efnisskrá hennar sem eftir lifir ársins: í kvöld er gestur hennar Jon Kimura Parker og leikur fyrsta píanókonsert Brahms. Jon er margverðlaunaður kanadískur píanóleikari, menntaður í Juilliard-skólanum í New York þaðan sem hann lauk doktorsprófi. Hann vakti heimsathygli þegar hann hreppti gullverðlaun í Leeds-píanókeppninni árið 1984, þar sem hann lék einmitt píanókonsert nr. 1 eftir Brahms í lokaumferðinni. Fjöldi þekktra píanista hefur gegnum tíðina staðið á sigurpallinum í Leeds, og má þar nefna Murray Perahia, Radu Lupu, Mitsuko Uchida og András Schiff. Jon er auk þess vinsæll þáttastjórnandi og hefur stýrt sjónvarpsþætti um sígilda tónlist, Whole Notes, á Bravo-sjónvarpsstöðinni í Kanada. Hann er prófessor í píanóleik við Shepherd School of Music í Houston og hefur haldið meistaranámskeið víða um heim, meðal annars við Juilliard og Yale. Á efnisskrá kvöldsins er þess einnig minnst að 200 ár eru liðin frá fæðingu Schumanns. Fyrsta sinfónía Roberts Schumann eða „Vorsinfónían", sem er sú glaðlegasta og vinsælasta af fjórum sinfóníum hans, er einnig á efnisskránni. Verkin voru samin með fárra ára bili: Píanókonsert nr. 1 í d-moll 1854-58 en sinfónía nr. 1 í B-dúr op. 38, „Vorsinfónían" 1841. Hljómsveitarstjóri kvöldsins er Norðmaðurinn Arild Remmereit. Hann nam píanóleik, söng og tónsmíðar við Tónlistarháskólann í Ósló, en lærði hljómsveitarstjórn hjá Karl Österreicher við Tónlistarháskólann í Vínarborg á árunum 1987-92. Hann var aðstoðarmaður Leonards Bernstein um nokkurra ára skeið og hóf feril sinn sem stjórnandi Wiener Residenz Orchester og við Úkraínsku þjóðaróperuna. Remmereit hefur stjórnað fjölda hljómsveita og fengið lofsamlegar viðtökur áheyrenda jafnt sem gagnrýnenda. Meðal þeirra sveita sem hann hefur stýrt má nefna sinfóníuhljómsveitirnar í Baltimore, Dallas, Detroit, Pittsburgh og Vínarborg, Fílharmóníuhljómsveitirnar í München og Tókýó, Þýsku sinfóníuhljómsveitina í Berlín, Mozarteum-hljómsveitina í Salzburg og La Scala í Mílanó. Remmereit hefur oft hlaupið í skarðið fyrir aðra stjórnendur á síðustu stundu, eins og hann gerir með Sinfóníuhljómsveit Íslands nú þar sem Andrew Litton þurfti að breyta ferðaáætlun sinni vegna tónleikaferðar um Ástralíu. Vorið 2005 sagði Riccardo Muti starfi sínu lausu sem aðalstjórnandi Scala-óperunnar og Remmereit var fenginn til að stjórna tónleikum hljómsveitarinnar þar með nokkurra daga fyrirvara; seinna sama ár stjórnaði hann hljómsveitum bæði í Evrópu og Bandaríkjunum í forföllum Christophs von Dohnányi og Daniels Harding. Sama var uppi á teningnum þegar Leonard Slatkin fékk hjartaáfall í nóvember í fyrra; þá hringdi Sinfóníuhljómsveit Detroit-borgar í Remmereit sem hljóp í skarðið með litlum fyrirvara. New York Times skrifaði um Remmereit að hann væri „the hottest conductor you've never heard of", en ef fram heldur sem horfir munu margir þekkja störf hans áður en langt um líður. Vinafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands heldur tónleikakynningu á undan tónleikunum í kvöld. Árni Heimir Ingólfsson tónlistarstjóri fjallar um Vorsinfóníuna eftir Schumann og píanókonsert Brahms, auk þess sem hann segir frá því sem ber hæst á næsta starfsári hljómsveitarinnar. Kynningin fer fram í Safnaðarheimili Neskirkju og hefst kl. 18. Hægt er að kaupa ljúffenga súpu á 1.500 kr. og allir eru velkomnir. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Lífið Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Lífið Offset skotinn við spilavíti í Flórída Lífið Ráðherrabarn komið í heiminn Lífið Furðubandið sem tryllti netið Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Lífið „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Lífið „Við erum öll nóg“ Lífið Fleiri fréttir Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Sjá meira