Eyjafjallajökull: Nýr fasi í gosinu 6. maí 2010 07:15
Gosmökkurinn úr Eyjafjallajökli fór í um tíu kílómetra hæð yfir stöðinn um klukkan sex í gærkvöldi og hélst í þeirri hæð fram til klukkan hálfátta. Þá lækkaði hann á ný og hefur verið stöðugur í um sex kílómetra hæð. Gunnar Guðjónsson á Veðurstofu Íslands segir að töluverð gjóskuvirkni virðist vera á svæðinu og mökkurinn sýnist vera nokkuð dökkur. Vindáttin blæs mekkinum að mestu til suðaustur og segir Gunnar að það gæti haft áhrif á flugsamgöngur á Írlandi og í vesturhluta Englands. Á annan tug skjálfta mældust í jöklinum í gær en þeir voru allir undir tveimur stigum og mældust þeir síðustu um klukkan tvö í nótt. Að sögn Gunnars er greinilega kominn nýr fasi í gosið. Hann bendir á að gosóróinn hafi minnkað mikið síðustu daga og að gosið sé orðið öskugos að nýju. Í Gígjökli virðist enda vera lítil bráðnun og svo virðist sem mesta orkan fari nú í að koma öskunni upp í andrúmsloftið. Hvað sem því líður er eldgosið í það minnsta enn í fullum gangi og sjást lítil merki um að á því verði lát á næstunni.
Mest lesið Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis Innlent Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Innlent „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Innlent Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Innlent Johnson rétt slapp við árás Rússa Erlent Fleiri fréttir Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Sjá meira