Svindlararnir halda illa fengnum hlut 6. maí 2010 06:15 Mynd/GVA
Þeir sem svíkja bætur út úr Tryggingastofnun ríkisins eru ekki krafðir um endurgreiðslu jafnvel þótt upp um þá komist. Að sögn Rögnu Haraldsdóttur, staðgengils forstjóra stofnunarinnar, er þetta vegna erfiðrar sönnunarfærslu þegar fólk skráir lögheimili á rangan stað. „Nú eru til skoðunar í félagsmálaráðuneytinu tillögur frá okkur um viðurlög líkt og önnur Norðurlönd hafa komið á hjá sér," segir Ragna. Stofnunin vilji sjá refsingar í bótasvikamálum líkt og í öðrum fjársvikamálum. „Það væri bæði til þess að varna því að menn geri þetta og til þess að þeir sæti viðurlögum ef þeir hafa rangt við," segir Ragna. Fréttablaðið sagði í gær frá tveimur fimm barna fjölskyldum sem sviku út bætur með því að fjölskyldufaðirinn skráði lögheimili sitt utan heimilis fjölskyldunnar. Önnur fjölskyldan fékk yfir sjö hundruð þúsund krónur í bætur mánaðarlega. Þar af voru um 170 þúsund krónur sem hún átti ekki rétt á. Á sjötta hundrað svikamál af ýmsu tagi voru afhjúpuð hjá TR í fyrra. Halla Bachmann, forstöðumaður hjá TR, segir að í slíkum málum þurfi fólk hreinlega að fallast á það sjálft að það sé ekki að fara rétt að til þess að stofnunin geti í framhaldinu lækkað bætur þess til samræmis við raunveruleikann. Halla segir að eftir að frétt Fréttablaðsins birtist í gær hafi tuttugu trúverðugar ábendingar borist um hugsanleg svik. Halla minnir á að á heimasíðu stofnunarinnar er sérstakur hnappur fyrir þá sem vilja láta vita ef þá grunar að einhver sé að svíkja út bætur. „Við hvetjum fólk til að láta okkur vita," segir hún. - gar
Mest lesið Ríkið situr á þúsundum hektara af framræstu votlendi Innlent Sagði frá fyrirætlunum sínum í SMS-i fyrir morðið Erlent „Ég mun ekki sjá eftir honum“ Innlent Yfirlæknir gagnrýnir auglýsingu gegn lyfi við RS-veiru Innlent Trump höfðar 15 milljarða dala mál gegn New York Times Erlent Trump-liðar heita hefndum Erlent Frumvarp um afnám laga um orlof húsmæðra lagt fram í tíunda sinn Innlent „Þetta var vissulega ekki í starfslýsingunni“ Innlent Ísland ekki óhult ef til átaka kemur í Evrópu Innlent Hefur ekki áhyggjur af svindli með nýju námsmati Innlent Fleiri fréttir Lokun Sorpu á Dalvegi enn frestað Munu áfram stýra fastanefndunum Fá að halda framkvæmdum áfram í bili Eldur í geymslu í blokk á Selfossi Yfirlæknir gagnrýnir auglýsingu gegn lyfi við RS-veiru Flestir sem skráðu sig í Skorradalshrepp fá að kjósa Frumvarp um afnám laga um orlof húsmæðra lagt fram í tíunda sinn Ríkið situr á þúsundum hektara af framræstu votlendi Sló töskunni í vélarhlíf lögreglubifreiðar „Þetta var vissulega ekki í starfslýsingunni“ Hefur ekki áhyggjur af svindli með nýju námsmati Þrjú innbrot og alltaf fúlsað við verkunum: „Þetta er kannski smá yfirlýsing“ Ísland ekki óhult ef til átaka kemur í Evrópu „Ég mun ekki sjá eftir honum“ Fjöldi glæpahópa á Íslandi hefur tvöfaldast á tíu árum „Ekki algengt að svona lekar verði“ Stóraukning skipulagðrar glæpastarfsemi og innbrotahrina hjá listamanni Flugvél með fjórum innanborðs fór út af flugbraut Kallar eftir náðun Kouranis og brottvísun strax á morgun Tiltekt ríkisstjórnar eins og að taka sokk af gólfi unglings Ingvar aftur kominn í leyfi frá þingstörfum Oddvitarnir ætla sér stóra hluti eftir átta mánuði Loka fyrir heitt vatn vegna leka á Bústaðavegi Tvíburarnir fengu ár í viðbót Hlaut náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Vara við svikapóstum um ólöglegar klámsíður og reikninga frá raforkusölum Baráttunni lauk með íslenskum ríkisborgararétti Er með hugmynd að nafni sem gæti vel gengið Bein útsending: Umhverfisþing 2025 Hells Angels á Íslandi hafi aukið umsvif sín og sýnileika Sjá meira