Innlent

Má biðja afsökunar

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði á miðstjórnarfundi flokksins á laugardag að Framsóknarflokkurinn hefði átt að „sporna við geggjuninni“ í aðdraganda bankahrunsins.

„Fyrir andvaraleysi og mistök flokksins má biðjast margfaldlega afsökunar,“ sagði formaðurinn sem kvað Framsóknarflokkinn bera „ábyrgð fyrir að hafa ekki gagnrýnt vöxt fjármálakerfisins og ekki komið auga á að græðgin og taumleysið var að fara gjörsamlega úr böndunum“.

Sigmundur Davíð sagði framsóknarmenn hafa átt von á því að vera umfjöllunarefni í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis en að þeir hafi fyrir löngu hafið sitt eigið uppgjör, meðal annars með mannabreytingum og nýrri stefnumótun.

„Reyndar kvað svo rammt að sjálfsgagnrýninni í flokknum að niðurstaða skýrslunnar virkar nánast léttvæg í samanburði. Hin raunverulega uppreisn æru flokksins er hins vegar fólgin í því að flokkurinn skyldi fyrstur viðurkenna afdráttarlaust að hann ætti hlut í því sem fór úrskeiðis og grípa til ráðstafana að eigin frumkvæði,“ sagði formaður Framsóknarflokksins í ræðu sinni. - gar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×