Ný Kríu skartgripalína: Innblástur frá list 11. júní 2010 15:00 Jóhanna Metúsalemsdóttir býr og starfar í New York. „
Nýja línan er undir áhrifum frá "tribal" málverkum eiginmanns míns, listamannsins Pauls Weil. Við vörpuðum meðal annars einu verka hans á fyrirsætuna fyrir myndatökuna í staðinn fyrir að klæða hana í föt eða nota farða," segir skartgripahönnuðurinn Jóhanna Metúsalemsdóttir um nýja skartgripalínu sína, en hún hannar undir nafninu Kría. Þetta er önnur línan frá Kríu og var Jóhanna í um þrjá mánuði að vinna hana. „Þetta er önnur línan mín en annars bý ég bara til nýtt skart þegar mér er mál að gera eitthvað. Það mætti eiginlega segja að fyrsta línan hafi komið út í þremur hollum og það er ekki ólíklegt að það verði eins með þessa línu, að ég bæti við hana ef mér dettur eitthvað sniðugt í hug," útskýrir Jóhanna.Mynd úr nýja "lookbook-inu" sem Elísabet Davíðsdóttir myndaði fyrir Kríu.Fyrri línan hefur verið fáanleg á vefnum, í Aurum á Bankastræti, Icelandicmarket.com og í vel völdum verslunum í Bandaríkjunum. „Það er ekki búið að reyna mikið á sölu á nýju línunni þar sem hún er bara rétt komin inn á heimasíðu Kríu. Eitthvað hefur borist af persónulegum pöntunum beint til mín en ég er mjög vongóð um að línan muni seljast vel þar sem "lookbook" sem ég gerði hefur vakið mikla lukku." Hægt er að skoða nýju línuna nánar hér á Facebook-síðu Kríu. Skart frá Kríu var notað í tískuþátt í marshefti tískutímaritsins Purple Magazine og var það hinn heimsþekkti ljósmyndari Terry Richardson sem tók myndirnar. Að sögn Jóhönnu er það mikil viðurkenning að fá hönnun sína birta í tímariti sem þessu.Myndaþátturinn úr Purple Magazine. Myndirnar eru fengnar af Facebook-síðu Kríu Jewelry.„Þetta eykur umtal og forvitni og vonandi leiðir þetta svo til þess að fleiri verslanir vilji kaupa Kríu skartið. Þetta helst allt voða mikið í hendur, það er að segja ef þú ert í vinsælu blaði í tískuþætti sem myndaður er af þekktum ljósmyndara þá er maður í góðum málum," segir Jóhanna að lokum kampakát. - sm
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sjá meira