Heiður að vinna með Ómari Ragnarssyni 11. júní 2010 12:00 Andri Freyr Viðarsson útvarpsmaður. „
Við félagarnir verðum „krúsandi“ um landið alla föstudaga og verðum með innslög sem heita Ómar og Andri á flandri. Við ætlum að kíkja í heimsókn í smábæina og dýfa tánum í sumarhátíðirnar og ég ætla meðal annars að draga karlinn með mér á Eistnaflug og í heimsókn til pabba. Þetta verður mjög fallegt allt saman,“ segir útvarpsmaðurinn vinsæli, Andri Freyr Viðarsson. Hann mun stýra laufléttum laugardagsþætti á Rás 2 í sumar og hefur útvarpsmaðurinn fengið engan annan en Ómar Ragnarsson til liðs við sig. Þetta er í fyrsta sinn sem Andri og Ómar starfa saman og segir Andri það vera mikinn heiður að fá tækifæri til að vinna með Ómari. „Það var mjög gaman að hitta meistarann. Hann varð líka mjög feginn að hitta mig í eigin persónu því kvöldinu áður hafði hann dreymt að ég væri tveir metrar á hæð og kæmist ekki fyrir í bílnum hans.“ Inntur eftir því hvernig sé að vera kominn heim á ný segir Andri það gott. „Ég er eiginlega nýlentur og er rétt svo að tékka mig inn, en það er alltaf gott að koma heim.“ Andri og Ómar verða í beinni útsendingu í útvarpsþættinum Popplandi á föstudögum ásamt því sem þeir verða með innslög í þætti Andra sjálfs. Þátturinn fer í loftið strax eftir hádegisfréttir á laugardögum og segist Andri Freyr ætla dusta rykið af gamalkunnum dagskrárliðum líkt og Flóamarkaðinum, Leynigestinum og Bak við lagið. Áður stýrði Andri hinum vinsæla útvarpsþætti Litlu Hafmeyjunni ásamt Dodda litla og sendi Andri þá út beint frá heimili sínu í Kaupmannahöfn. Aðspurður segist hann ekki óvanur því að stýra útvarpsþætti einn en viðurkennir að hann muni sakna félagsskapar Dodda í hljóðverinu.
Mest lesið Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Lífið Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Lífið Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Lífið Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden Lífið Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Lífið Depp er Ebeneser Skröggur: „Gott að vera kominn aftur“ Bíó og sjónvarp Seinleg heimför sakbitins Ódysseifs Gagnrýni Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Tónlist Lofar nýrri Ódysseifskviðu fyrir árslok Bíó og sjónvarp „La La Höndin“ úr sögunni Lífið Fleiri fréttir Chris Brown játaði ofbeldisfulla hegðun Afþakkaði milljón Bandaríkjadala fyrir eitt uppistand Upplýsingafulltrúar sem flúðu fréttirnar Fyrrverandi mágkonur selja til að kaupa „draumakommúnu“ Biðst afsökunar á óviðeigandi sketsi með sautján ára Stodden „La La Höndin“ úr sögunni Úlfar dauðvona en líður ljómandi vel Hvað veistu um… Mosfellsbæ? Olivia Rodrigo hljóp í rigningunni og keypti sér plötur Elín Hall opnar sig um brjóstaminnkunina Enn eitt barnið vill losna við Pitt-nafnið „Svo setti hann á sig sítrusilminn og þá máttu jólin koma“ Barnastjarnan Kaylee Hottle látin „Ég ætla snemma að sofa, því ég er dauðþreyttur“ Robbie Williams útskýrir dularfulla hvíta efnið „Ríða, drepa, giftast: Steindi, Gillz og Auddi Blö?“ Spunameistarinn Alastair Campbell mærir íslenska sumarsuddann Stríðið um baðstrendur Ítalíu Stóra Tartaría: Heimsveldið sem hvarf og leðjuflóðið mikla Stjörnurnar skinu skært í stúkunni Stjörnulífið: Dorrit smókaði með Phoebe Gróðurinn brosti allan hringinn á Götubitahátíð „Lítil stúlka með bollukinnar“ komin í heiminn Þöglu börnin gleymast í kerfinu Vansæll á sumum af stærstu augnablikum lífs síns Krakkatía vikunnar: Lilo, Akkilles og risaskordýr Þegar gögnin láku og Ashley Madison var á allra vörum GDRN og Jón Jónsson: Beyoncé-stælar, bítbox og falsetta í Bæjarbíói Fréttatía vikunnar: FIFA, ást Jóns og bjargvættur Höllu Olivia Rodrigo á Íslandi Sjá meira