Lífið

Tískuvikurnar byrjaðar

Raunveruleikastjarnan Olivia Palermo var mætt í blómakjól enda enn þá 30 stiga hiti og sumar í New York.
Raunveruleikastjarnan Olivia Palermo var mætt í blómakjól enda enn þá 30 stiga hiti og sumar í New York.

Nú eru tískuvikur haustsins að fara af stað og er það New York sem reið á vaðið um helgina. Verið er að sýna tískustrauma og stefnur næsta vors og sumars. Stjörnurnar flykkjast til borgarinnar til að sýna sig og sjá aðra sem og að drekka í sig tískuna.

Meðal gesta á fyrstu sýningunum var Anna Wintour, ritstjóri Vogue, á sínum stað með svörtu sólgleraugun sem alla jafna einkenna hana ásamt Blake Lively og Leighton Meester úr Gossip Girl.

Ef marka má fyrstu sýningar tískuvikunnar verða fölir og ljósir litir allsráðandi með hækkandi sól. Niðurmjóu buxurnar víkja fyrir víðum skálmum úr flæðandi efni og magabolirnir eru að læðast aftur á sjónarsviðið.

Fatahönnuðurinn Vera Wang var klædd í víðar buxur samkvæmt nýjustu tísku.





Diane Von Furstenberg glöð að vanda.







Leighton Meester var í skærbláum kjól með framúrstefnulegu sniði.





Blake Lively úr Gossip Girl var klædd í sumarlegan munstraðan kjól.





Anna Wintour er talin ein sú áhrifamesta í bransanum.





Bert á milli. Víðar skálmar, hárbönd og stuttir toppar sumarið 2011.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.