Samdi lög um vikudagana 3. apríl 2010 08:00 Djassarinn reyndi hefur samið lög um alla vikudagana. Þau verða flutt á Rosenberg á þriðjudaginn. fréttablaðið/anton
Djassarinn Árni Ísleifsson hefur samið lög um alla vikudagana. Af því tilefni heldur hann tónleika með Stórsveit Öðlinga næstkomandi þriðjudag. „Mér datt þetta allt í einu í hug,“ segir Árni. Undanfarin tíu ár hefur hann spilað með Dixieland-hljómsveit sinni og samdi lögin upphaflega fyrir hana. „Svo voru svokallaðir Öðlingar komnir með blásarasveit. Það voru svo margir í hvort tveggja að við skelltum þessu saman í stórsveit. Ég þurfti að endurskrifa útsetningarnar því það bættust við fimm manns en það gekk þokkalega,“ segir Árni. Hann er 82 ára en Öðlingarnir eru í Öðlingaklúbb FÍH sem samanstendur af djössurum sem eru yfir sextugt. Árni segir að æfingarnar fyrir tónleikana, sem verða haldnir á Rosenberg, hafi gengið vel. Í framhaldi af þeim ætlar sveitin að spila í Ráðhúsi Reykjavíkur síðar í mánuðinum á svokölluðu maraþonstórsveitarmóti, þar sem stórsveitir úr tónlistarskólum verða á meðal gesta. Árni er margreyndur píanóleikari og djassari. Hann hóf feril sinn árið 1945 er hann spilaði með hljómsveit Björns R. Einarssonar í Listamannaskálanum, sem var við hliðina á Alþingishúsinu. Hann rak Djasshátíð Egilsstaða fyrstu átján árin og hefur á ferli sínum gefið út eina vinylplötu sem kom út 1984 og tvo geisladiska. Annar diskurinn hét Portrait of a Woman, sem hafði að geyma tíu lög um mismunandi líkamsparta kvenna, og sá síðasti hét Rökkurblús sem kom út fyrir tveimur árum. Árni ætlar ekki að gefa lögin um vikudagana út á geisladiski og stefnir frekar á dinner-plötu þar sem hann verður einn við píanóið í rólegheitagírnum. Djasssöngkonan Hildur Guðný Þórhallsdóttir hitar upp á tónleikunum á þriðjudag, sem hefjast klukkan 21, með því að syngja nokkur lög eftir Árna. Að því loknu tekur Stórsveit Öðlinga við og flytur lögin sjö um vikudagana.freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ Lífið „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Lífið Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Lífið Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd Lífið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Lífið Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Lífið „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Lífið Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Lífið Sambandi Cox og McDaid lokið Lífið Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Tónlist Fleiri fréttir „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Bónorð yfir síðum bjór á Brooklyn-brúnni Ungir veiðimenn nutu sín í sólinni Hvað veistu um... Ross í Friends? GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Ólík túlkun listamanna á Reykjavík í tvær aldir „Ég vil gera frábæra hluti eins og ég sé í sjónvarpinu“ Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Þrastahreiður í Garðabæ í beinni Sjá meira