Lífið

Páll Óskar söng óvænt fyrir börnin á Álftaborg

Páll Óskar fór húsavillt en lét það ekki á sig fá og tók lagið fyrir krakkana á Álftaborg, sem glöddust mjög við heimsóknina.
Páll Óskar fór húsavillt en lét það ekki á sig fá og tók lagið fyrir krakkana á Álftaborg, sem glöddust mjög við heimsóknina.

Páll Óskar Hjálmtýsson kom í óvænta heimsókn á leikskólann Álftaborg á miðvikudaginn. Palli var á leiðinni að Lyngási en fór húsavillt og mætti því starfsmönnum Álfta­borgar á kaffistofu leikskólans. Heimsóknin endaði með samsöng þar sem Palli og börnin tóku lagið.

„Hann heillaði okkur algjörlega upp úr skónum,“ segir Anna Ágústsdóttir, leikskólastjóri á Álftaborg, en leikskólinn fékk óvænta heimsókn frá Páli Óskari Hjálmtýssyni á miðvikudagsmorguninn.

„Hann kemur inn á kaffistofu og spyr okkur hvar Lyngás sé til húsa og vissi greinilega að hann hefði farið húsavillt. Við vísuðum Palla á réttan stað og spurðum hann í leiðinni hvort hann væri ekki til í að taka lagið fyrir krakkana, sem hann gerði, og þau sungu líka fyrir hann,“ segir Anna, og bætir því við að lagið hans Palla hafi hljómað stanslaust það sem eftir lifði dags á leikskólanum. Haraldur Diego fékk heldur betur að heyra af komu Páls Óskars, en hann á þriggja ára son á Álftaborg.

„Ég fer að sækja litla strákinn minn á leikskólann og þegar ég kem er starfsmaður að aðstoða hann í föt. Hún spyr strákinn hvort hann vilji ekki segja pabba hver hafi komið í heimsókn, hann horfir á mig og segir: „Gordjöss! Gordjöss kom í heimsókn“,“ segir Haraldur, sem gat ekki annað en hlegið við frásögnina. „Ég verð að viðurkenna að Páll Óskar var ekkert sérstaklega hátt skrifaður hjá mér en hann hefur verið að skríða upp vinsældalistann. Þarna skreið hann síðan algjörlega á toppinn,“ segir Haraldur.

Fréttablaðið hafði samband við Pál Óskar, sem fannst heimsóknin hin ánægjulegasta. „Ég var á leiðinni á Lyngás, þar sem ég var að veita styrk, og fór bara húsavillt. Þær báðu mig um að taka lagið fyrir krakkana og ég gerði það. Þetta var án efa ánægjulegasta óvænta heimsókn sem ég hef farið í,“ segir Palli léttur í bragði.

kristjana@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.