Tvær myndir um Airwaves 23. september 2010 09:00 Íslenskir og erlendir tónlistaráhugamenn hafa skemmt sér vel á Airwaves-tónlistarhátíðinni í gegnum tíðina en nú hafa tvær heimildarmyndir um tónlistarhátíðina verið gerðar. Mynd/Hörður „
Myndin á að vera eins konar heimild um hvernig Airwaves-hátíðin er búin að þróast gegnum árin og hvernig stemningin myndast í kringum hana hjá gestum og tónlistarfólki,“ segir Guðjón Jónsson leikstjóri en hann stendur að heimildarmynd um íslensku tónlistarhátíðina sem verður frumsýnd á Stöð 2 á mánudaginn. Myndin er að sögn Guðjóns hress og skemmtileg. „Við fléttum saman gömlum upptökum af hátíðunum í gegnum tíðina við viðtöl við þekkta íslenska tónlistarmenn, erlenda blaðamenn og annað bransafólk til að fá þeirra upplifun af Airwaves,“ segir Guðjón en myndin er um hálftíma löng. „Það er mjög skemmtilegt að rifja upp sögu tónlistarhátíðarinnar frá því að vera í flugskýli árið 1999 með Gus Gus sem aðalnúmerið til dagsins í dag en hátíðin er núna eins konar sena fyrir ný bönd að verða uppgötvuð,“ segir Guðjón en hann vill meina að myndin sýni það hversu mikilvæg hátíðin er fyrir íslenska tónlistarsenu. Mynd Guðjóns er ekki eina heimildarmyndin sem gerð hefur verið um hátíðina en myndin Where"s the Snow? eftir þá Bowen Staines og Gunnar B. Guðbjörnsson, verður frumsýnd um helgina í tengslum við RIFF-kvikmyndahátíðina. „Við tókum upp fullt af flottu tónleikaefni, viðtöl við gesti og aðstandendur,“ segir Gunnar B. og bætir við að í myndinni verði spurningunni: „Hvað er eiginlega svona frábært við Icelandic Airwaves?“ svarað. - áp
Mest lesið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Fleiri fréttir Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Sjá meira