Rósa Guðmunds spilar fyrir lykilfólk hjá Sony 12. apríl 2010 09:30 Rósa Guðmundsdóttir reynir að koma sér á framfæri í tónlistarbransanum í New York. „
Næst á dagskrá er að koma fram fyrir lykilfólk innan Sony," segir tónlistarkonan Rósa Guðmundsdóttir. Rósa hefur búið í New York undanfarin ár og unnið að því að koma sér á framfæri í tónlistarbransanum. Hún kemur ein fram ásamt því að starfa með hljómsveit sinni The Ultratight. Rósa á í viðræðum við plötuútgáfuna Jive, sem er undir útgáfurisanum Sony og gefur meðal annars út Britney Spears og Justin Timberlake. Hún segir tónlistarbransann hafa breyst mikið í kjölfar kreppunnar og að aldrei hafi verið erfiðara að komast á samning. „Þetta snýst bara um einu manneskjuna sem trúir á mann," segir Rósa. „Ég er komin með lykilmanneskju innan Jive. Við sjáum bara hvert það leiðir." Næsta skref Rósu er að koma fram á svokölluðum „showcase"-tónleikum, en þangað mætir lykilfólk innan Sony. Tónleikarnir fara fram á litlum bar í hinni víðfrægu Trump-byggingu í New York. „Núna er svo erfitt að fá fólk frá útgáfunum til að fara út og sjá fólk spila," segir hún. „Plötufyrirtækin taka ekki sénsa lengur. Það þarf að vera manneskja sem trúir á þig 240 prósent. Hann þarf að leggja starfið undir til þess að plötufyrirtæki taki séns. Annaðhvort þarf að gera eins og pabbi Taylor Swift, leggja til tvær milljónir dollara til að koma þér inn eða að manneskjan frá útgáfunni verði að trúa á þig. Sem betur fer er ég komin með eina svoleiðis manneskju innan Jive." Þeir sem vilja fylgjast með ævintýrum Rósu geta leitað að hljómsveit hennar, Rosa & the Ultratight á Facebook. - afb
Mest lesið Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Lífið Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Lífið Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Lífið Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Lífið Rasistar í sumarbústað Gagnrýni Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Lífið Í öndunarvél eftir blóðeitrun Lífið Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum Lífið Ólst upp með lítið á milli handanna og fór ung að vinna í fiski Lífið Tíminn og vatnið frumsýnd á Sundance: „Viska afa í Teigó sigraði hjörtu þeirra“ Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Í öndunarvél eftir blóðeitrun Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Draugur Lilju svífur yfir vötnum Þórdís og Júlí eiga von á öðru barni Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Forritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu „Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Kristrún, Sólrún Diego og Jón Jónsson sáu Galdrakarlinn í Oz Fréttatían: Pólitíkin, flug og söngleikir Sveppi þvoði hnausþykkt hár Eiðs Smára Féll eftir tuttugu ára edrúmennsku Ragga Theó fann ástina hjá Davíð Þór Ólst upp með lítið á milli handanna og fór ung að vinna í fiski Stjörnulífið: Fáklædd í fimbulkulda Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum „Er eðlilegt að kynlíf taki af mér stjórn og að ég sé upptekinn af kynlífi flesta daga?“ Gisti þar sem Verdi andaðist fyrir hreina tilviljun Dagurinn þegar Bessastaðatjörn varð vettvangur harmleiks Gæti vaknað einn daginn og ætlað á þing Kannast ekki við að vera genginn til liðs við Samfylkinguna „Sílíkon er eitthvað sem mun fara með mér í gröfina“ Aron Can og Erna selja en elska eldhúsbúrið Brúðurin hljóp grátandi út áður en Victoria dansaði við Brooklyn Fyrrverandi bassaleikari Scorpions látinn Rifjar upp misgóðar minningar í sölutilkynningunni Sjá meira
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“